Page 1 of 6
Samkoma 30. nóvember kl. 14:00 Húsgagnahöll

Posted:
Mon 17. Nov 2003 22:18
by Jss
Er ekki að verða kominn tími á samkomu ???
Finnst það sjálfum, mætti vera samkoma á næstunni, fínt að hafa þetta svona ca. á 2-3 vikna fresti, allavega áður en það fer að kólna meira og veður versnar.

Posted:
Mon 17. Nov 2003 22:30
by Haffi
Aldrei vont veður í reykjavík... en hondan mín er alltaf ready í slaginn =)

Posted:
Mon 17. Nov 2003 22:40
by hlynurst
Uss... ég er kominn á stálfelgurnar og það er ekkert gaman að keyra á þessum h*****s vetrardekkjum! Er bara að spá í að skipta aftur... Engin snjór hérna!

Posted:
Mon 17. Nov 2003 22:43
by Jss
hlynurst wrote:Uss... ég er kominn á stálfelgurnar og það er ekkert gaman að keyra á þessum h*****s vetrardekkjum! Er bara að spá í að skipta aftur... Engin snjór hérna!
Ég er nú bara á 17" Michelin Pilot Alpin
Gaman að vera flottur allan ársins hring
Dekkin reynast bara vel, missir aðeins sportlega eiginleika við þetta þar sem gúmmíið er "aðeins" mýkra en í hinum dekkjunum enda eru þau mjög hörð.

Posted:
Mon 17. Nov 2003 22:44
by hlynurst
mýkra gúmmí = meira grip
Síðan er það nátturulega munstrið í dekkjunum.


Posted:
Mon 17. Nov 2003 22:46
by Jss
hlynurst wrote:mýkra gúmmí = meira grip
Síðan er það nátturulega munstrið í dekkjunum.

Enda spólar bíllinn eiginlega ekkert á þessum nema maður hreinlega reyni það, hefur ekki heyrst múkk í þeim ennþá, maður tímir ekki alveg að tékka hvort það sé "hægt" að spóla á þessum dekkjum. En gripið mjög gott og heyrist sama og ekkert veghljóð inní bíl.


Posted:
Mon 17. Nov 2003 22:48
by bjahja
Það er algjör óþarfi að vera á vetrardekkjum núna...............maður sleppir því bara að keyra ef það er frost/Snjór
En mér líst vel á samkomu, það er langt síðan að ég hef komist og ég væri til í að hafa hana um miðjan dag svo að það verði bjart og gott


Posted:
Mon 17. Nov 2003 22:50
by Logi
Já samkomu fljótlega, bara ekki um næstu helgi. Þá kemst ég ekki!!!!

Posted:
Mon 17. Nov 2003 22:56
by Jss
Hvað segja menn/drengir/konur/stelpur um samkomu t.d.
29. nóvember kl. 14:00
Gætu ekki flestir mætt þá?
Fínn fyrirvari og svona

Posted:
Mon 17. Nov 2003 22:59
by hlynurst
Ef að þessu verður þá vil ég bara minna fólk á eitt...
MUNA EFTIR KULDAGÖLLUM!


Posted:
Mon 17. Nov 2003 23:02
by bjahja
Jss wrote:Hvað segja menn/drengir/konur/stelpur um samkomu t.d.
29. nóvember kl. 14:00
Gætu ekki flestir mætt þá?
Fínn fyrirvari og svona
Já maður.......er í fríi og allt


Posted:
Mon 17. Nov 2003 23:04
by Jss
Cool, en maður þarf nú ekki kuldagalla (vona ég) bara klæða sig eftir veðri, alltaf jafn fyndið að sjá hvað sumir mæta illa klæddir vitandi að þeir eiga eftir að standa úti að skoða bílana og spjalla.


Posted:
Mon 17. Nov 2003 23:04
by Logi
Já samkomu 29 nóv., það hljómar mjög vel!
ATH

Posted:
Mon 17. Nov 2003 23:27
by Tommi Camaro
já . ég var bara að spá hvort það væri ekki hægt að fara bara á akinn og setjast þar inn.?!? eða einhvern stað sem við getum setist niður fengið okkur einn snæðing eða svo

Posted:
Mon 17. Nov 2003 23:30
by bjahja
Mér finnst alltaf skemmtilegra að hittast, leggja bílunum saman og skoða hjá hvor öðrum...........síðan getur bara verið rúntur og fengið okkur að borða