bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Árshátíð BMWkrafts 2008
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=31720
Page 1 of 20

Author:  arnibjorn [ Mon 08. Sep 2008 10:35 ]
Post subject:  Árshátíð BMWkrafts 2008

Jæja jæja.. loksins er stundinn runnin upp!!

Árshátíð BMWKrafst 2008 verður haldin
laugardaginn 1. nóvember í Sjálfstæðissalnum á Seltjarnarnesi, austurströnd 5, kl 19:05



Það verður að sjálfsögðu hlaðborð eins og undanfarin ár.

Boðið verður uppá tryllta kraftsbollu eins og síðustu ár og við mælum með að menn kippi með sér nokkrum köldum til að drekka eftir matinn(ekki skilyrði samt) :wink:

Gos og snakk verður á borðum.

Vil hvetja alla til að mæta, meðlimi og non meðlimi, konur og kalla
:D

Jæja, þá er það gourmet matseðillinn


Forréttir

Grafinn lax, pipargrafið nautafille, skelfisksalat í kókos og lime, Hreindýrapaté

Aðalréttir

Villikryddað lambalæri, reyktur grísakambur og hunangsgljáðar kalkúnabringur

Eftirréttir

Súkkulaðimús, kókos-passion terta, ferskt ávaxtasalat, rjómi og sósur

Þrusugott kraftsvideo verður sýnt, allar helstu uppákomur bmwkrafts þetta árið koma fram þar!

Það verða líka veitt verðlaun fyrir sigurvegara úr árshátíðarkönnuninni sem verður sett í gang á næstu dögum


Verð fyrir meðlimi er kr. 3.000.- (sama verð gildir fyrir maka)
Verð fyrir ekki-limi er kr. 4.000.-
Þetta er lækkun frá síðasta ári.. krafturinn reynir auðvitað að koma til móts við kreppunni :wink:


Það er nauðsynlegt að þeir sem ætla sér að mæta staðfesti komu sína á arnib11 @ gmail.com. Seinasti séns til að skrá sig er á mánudaginn 27. oktober, þannig að allir að skrá sig og borga sem fyrst

Best er að þegar þú hefur staðfest komu þína (og maka ef við á), að skella sér inná heimabankann og millifæra inná:
reikning 0322-26-2244
kennitala 510304-3730


Munið að láta kennitölu eða nafn greiðanda fylgja með.

Þetta verður gjörsamlega bilað skemmtilegt kvöld og ég hlakka til að hitta alla og vona að sem flestir sjái sér fært að mæta :king: \:D/

kveðja,

Skemmtinefnd BMWKrafts

Author:  Einarsss [ Mon 08. Sep 2008 11:26 ]
Post subject: 

SAMA HVAÐ! :D

Author:  Mazi! [ Mon 08. Sep 2008 12:10 ]
Post subject: 

hvað gerist á svona árhátíð ?

Author:  Steini B [ Mon 08. Sep 2008 12:11 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
SAMA HVAÐ! :D

X2

Author:  arnibjorn [ Mon 08. Sep 2008 12:36 ]
Post subject: 

Mazi! wrote:
hvað gerist á svona árhátíð ?


Hvað gerist yfirleitt á árshátíðum?? :lol:

Author:  Jón Ragnar [ Mon 08. Sep 2008 12:56 ]
Post subject: 

Mazi! wrote:
hvað gerist á svona árhátíð ?


haha nab! :lol:

Author:  Mazi! [ Mon 08. Sep 2008 13:12 ]
Post subject: 

Fillerí og kynsvall? 8) :o


hvar verður þetta og er aldurstakmark ?

Author:  arnibjorn [ Mon 08. Sep 2008 13:15 ]
Post subject: 

Mazi! wrote:
Fillerí og kynsvall? 8) :o


hvar verður þetta og er aldurstakmark ?


Við erum ekki einu sinni búnir að ákveða hvenær þetta verður hvað þá hvar :)

Fyrst finnum við dagsetningu og svo ákveðum við stað.

Author:  HPH [ Mon 08. Sep 2008 14:11 ]
Post subject: 

en hvað er Elídan á kraftinum að gera 18okt?
Af hverju er ekki hækt að halda þetta þá? :lol:

Author:  arnibjorn [ Mon 08. Sep 2008 14:14 ]
Post subject: 

HPH wrote:
en hvað er Elídan á kraftinum að gera 18okt?
Af hverju er ekki hækt að halda þetta þá? :lol:


Iceland Airwaves er þá og eflaust einhverjir sem ætla á það... þ.á.m. ég :D

Author:  IngóJP [ Mon 08. Sep 2008 18:06 ]
Post subject: 

Þetta var bara gaman síðast minnir mig :lol:

Er möguleiki á að fá sama húsnæði aftur?

Author:  Danni [ Mon 08. Sep 2008 18:08 ]
Post subject: 

Skiptir ekki máli fyrir mig.. get ekki séð betur en að ég er í fríi báða dagana

Author:  Lilja [ Mon 08. Sep 2008 19:29 ]
Post subject: 

Sama hvað :D

Author:  Ingsie [ Mon 08. Sep 2008 20:05 ]
Post subject: 

IngóJP wrote:
Þetta var bara gaman síðast minnir mig :lol:

Er möguleiki á að fá sama húsnæði aftur?


Saknaru píanósins ? :lol:


en já SAMA hvað! ég mæti 8)

Author:  IngóJP [ Mon 08. Sep 2008 20:09 ]
Post subject: 

Ingsie wrote:
IngóJP wrote:
Þetta var bara gaman síðast minnir mig :lol:

Er möguleiki á að fá sama húsnæði aftur?


Saknaru píanósins ? :lol:


en já SAMA hvað! ég mæti 8)



hahaha nei ég er hættur að spila núna er ég bara að flytja þau

Page 1 of 20 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/