Eruð þið til í næstu samkomu með STJÖRNUNNI-Benz klúbbnum?

Posted:
Fri 29. Aug 2003 11:22
by bebecar
Ég rakst á þetta á Benz rásinni
http://www.stjarna.is/forum/viewtopic.php?t=42 Ég stakk uppá að við ættum að hafa eina samkomu saman þar sem þýskir eðalbílar mæta, helst að fá Porsche klúbbinn með.

Posted:
Fri 29. Aug 2003 11:32
by gstuning
Nje mér líst ekki á það,
BMW kúbburinn snýst ekki um neitt nema BMW,
Ekki benz, ekki porsche, ekki lotus, ekki ford, ekki MG, ekki porsche, ekki GM, ekki Renault, ekki ferrari,, ekki lamba, ekki Bugatti, ekki neitt nema BMW og bara BMW,
Ég er BMW áhugamaður og hef ekki einn né neinn áhuga á að sjá feita klunnalega benza, það er gamann að sjá þá á fornbílasýningum og slíku en ekki séns að ég nenni að skoða þá á samkomu,
Þér bebecar er auðvitað velkomið að fara sjálfur, en ég vota hell no

Posted:
Fri 29. Aug 2003 11:33
by oskard
stjórnendur þessa klúbbs er einmitt búnir að vera að ræða þetta
bebecar þar sem þú ert þektur á öllum bílaspjöllum væri nottla
hellíti gott ef að þú gætir spjallað við porscha klúbbinn


Posted:
Fri 29. Aug 2003 11:34
by bebecar
Þú ert semsagt ekki með bíladellu heldur BMW dellu?

Posted:
Fri 29. Aug 2003 11:46
by gstuning
Ég er með bíladellu af háu stigi, en ég hef bara ekki áhuga á Benz,

Posted:
Fri 29. Aug 2003 12:22
by bebecar
Ég skal senda meil á Porsche klúbbinn.
Myndir þú mæta GStuning þá? Porsche er reyndar ekki BMW, þannig að....


Posted:
Fri 29. Aug 2003 12:23
by Leikmaður
....fuck it Gunni þá sleppir þú því bara að mæta, að mínu mati væri þetta mjög sniðugt!! Því fleiri því skemmtilegra


Posted:
Fri 29. Aug 2003 13:03
by GHR
Ég er sammála Gunna!!
Þetta er
BMW klúbbur, ekki það að ég fíli ekki Benz.......
Benz er eitthvað svona CLEAN og fallegir limmar (svona gömlu manns bílar) en BMW svona Mad Max tæki (svalir og evil)


Posted:
Fri 29. Aug 2003 13:06
by oskard
Við erum að tala um EINA samkomu ekki ALLAR samkomur bmwkrafts !!!
Ég held að það sé bara gaman að hafa stóra þýska samkomu með
flottum bimmum, benzum og porscheum.

Posted:
Fri 29. Aug 2003 13:32
by bebecar
Nákvæmlega!
Ég ætla mér að eiga Porsche einhverntímann! Og sennilega Benz líka!

Posted:
Fri 29. Aug 2003 13:51
by Gunni
come on, þetta er eitt skipti. það er alveg gaman að vera bimmar í einni röð porschear á móti og benx við hliðina á....en við vitum samt allir hvaða bílar eru bestir


Posted:
Fri 29. Aug 2003 13:58
by arnib
Gunni wrote:come on, þetta er eitt skipti. það er alveg gaman að vera bimmar í einni röð porschear á móti og benx við hliðina á....en við vitum samt allir hvaða bílar eru bestir

Já auðvitað!
Ýktléttirgeðigtkúl bílar sem heita 107u5


Posted:
Fri 29. Aug 2003 14:04
by bebecar
hehe! Verst að það er bara einn Lotus á landinu.

Posted:
Fri 29. Aug 2003 14:06
by arnib
bebecar wrote:hehe! Verst að það er bara einn Lotus á landinu.
Wow!
Kannt þú að lesa útúr dulmálinu okkar 31337-5P34K
Annars var þetta nú kaldhæðni, allir vita að BMW er besti bíll í heimi!

Posted:
Fri 29. Aug 2003 14:11
by bebecar
Ehhh... nei - ég er ekki tölvuþenkjandi.
Reyndar er ég að kljúfa mig út úr netsamfélaginu, hætta með debet og kreditkort og GSM síma, svo er ég farinn að safna dósamat og haglaskotum og er að leita að góðu húsnæði úti á landi - helst afskekkt.
Framleiðir nokkuð BMW pick up?