Page 1 of 6

Kraftsdagur í B&L Laugardaginn 11. ágúst Kl. 11:00

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 18:39
by Gunni
Kraftsdagur í B&L

B&L ætlar að bjóða okkur Krafts-meðlimum í heimsókn til sín Laugardaginn 11. ágúst, frá 11:00-14:00.

Þar getum við stillt bílunum upp fyrir utan og haldið smá samkomu.

Dagskrá:

11:00 BMW samkoma á bílaplaninu fyrir utan varahlutaverslunina,
þannig að menn verða að mæta á vel bónuðum og fínum bílum! 8)

Tilboð verða á Mequiars vörum, BMW tengdum vörum inni í verslun og mögulega á varahlutum sem til eru á lager

25% afsláttur af öllum BMW vörum (sem eru til á lager)
15% Meguiar's

Í hádeginu verður boðið upp á eitthvað smá BMW-snarl!

Svo þegar að menn hafa fengið sér smá bita þá munu Bjarki og félagar á verkstæðinu leiða okkur um verkstæðið og sýna okkur svæðið og bilanagreiningagræjurnar.

Þeir ætla að bjóða mönnum uppá að setja bílana uppá lyftu og kíkja létt
á þá. Ef einhver er með vandamál þá er möguleiki að fá þá til að tengja
bílinn í bilanagreininn.

Þeir sem hafa áhuga á að láta taka létt "check" á bílunum sínum verða að
senda EP á mig (Gunni) og skrá sig. Það er takmarkaður fjöldi sem kemst
að í þetta, svo um að gera að vera snöggur að skrá sig.


Hverjum alla eindregið til að mæta þó svo að fyrirvarinn sé stuttur, þannig að það verða allir að sjæna og gera bílana fína og stillum upp góðri sýningu fyrir utan.

ATH mætið tímanlega!

Kveðja,

Skemmtinefnd BMWKrafts

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 18:43
by xtract-
vááá, frááábært framtak... er allveg að fýla þetta.. verð að fara að fá mér bmw aftur :D

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 19:18
by Tommi Camaro
þetta er snilldinn einn
:wink:

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 19:37
by Einarsss
Mæti á ný bónuðum meguairs bíl :P

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 19:44
by srr
Fúlt að 535i E28 sé ekki tilbúinn. Hefði verið töff að mæta á honum upp í B&L 8)

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 20:31
by sh4rk
Djöfull ég kemst ekki hvorugur bimminn klár

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 21:34
by KFC
Myndi mæta ef ég væri á landinu, en allavega flott framtak hjá ykkur

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 21:44
by srr
sh4rk wrote:Djöfull ég kemst ekki hvorugur bimminn klár

Hefði ekki verið amalegt að sjá E23 S38B36, E28 535i og E24 645i hlið við hlið upp á B&L plani 8) :shock:

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 21:56
by Aron Fridrik
úff.. vinna + og brotið subframe.. er ekki hægt að fresta þessu um viku ? :lol:

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 21:56
by Gunni
Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast starfsemi fyrirtækisins og starfsmönnum.
Það er alltaf gaman að koma í heimsókn til strákanna í búðinni og tala nú ekki
um að fá túr um verkstæðið og sjá hvernig tæknin hjá BMW virkar.
Það er heldur ekki á hverjum degi sem mönnum býðst að fá snillingana Bjarka
og félaga til að kíkja á bílinn FRÍTT!

Hvetjum alla til að mæta, og merkja við í pollinn hvort menn mæta eða ekki.
Það er gott til að hægt sé að áætla mætingu m.t.t. fæðu o.þ.h.

kv. Skemmtinefndin

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 21:59
by gstuning
best að drífa nissan vélina ofan í og draga kaggann í rvk, sjá :shock: á þeim þegar húddið væri opnað.

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 23:16
by maxel
haha ég vinn við hliðiná og er með einn næstumn ónýtan 320, sýna fólki hversu ónýtir e30 bílar geta orðið 8)

PostPosted: Tue 07. Aug 2007 23:20
by Schulii
Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að mæta!!
Frábært framtak! Verður án efa mjög skemmtilegt :D

PostPosted: Wed 08. Aug 2007 07:40
by Lindemann
mæti 8)

PostPosted: Wed 08. Aug 2007 12:52
by Róbert-BMW
Mæti


8)