Page 1 of 1

Samkomur BMWKrafts júlí - október 2007

PostPosted: Sat 06. Jan 2007 20:26
by iar
Sælir félagar!

Hér er samkomuplanið út sumarið og eitthvað fram á haust. Samkomur eru haldnar á tveggja vikna fresti, til skiptis á þriðjudags- og sunnudagskvöldum kl. 20:30.

Þriðjudagssamkomurnar eru kl. 20:30 á neðra bílastæðinu við Perluna (sjá kort hér fyrir neðan). Ef veður er mjög slæmt þá flyst samkoman niður í Borgartún á sama stað og Sunnudagssamkomurnar.

Sunnudagssamkomurnar eru kl. 20:30 á bílastæðahúsinu á bak við Íbúðalánasjóð í Borgartúni (sjá kort hér fyrir neðan). Við verðum uppi ef veður leyfir (keyrt upp á milli Kaupþings og Íbúðalánasjóðs). Ef veðrið er ekki nógu gott þá förum við niður í skjól (keyrt inn á milli Íbúðalánasjóðs og Hagstofu).

Ef breytingar verða á planinu, t.d. vegna annara uppákoma þá verða þær breytingar auglýstar hér.

Samkomuplanið í júlí - október 2007 er semsagt eftirfarandi:


1. júlí (sunnudagur) kl. 20:30 á efra bílastæðinu á bak við Kaupþing í Borgartúni

17. júlí (þriðjudagur) kl. 20:30 á neðra bílastæðinu við Perluna

29. júlí (sunnudagur) kl. 20:30 á efra bílastæðinu á bak við Kaupþing í Borgartúni

14. ágúst (þriðjudagur) kl. 20:30 á neðra bílastæðinu við Perluna

26. ágúst (sunnudagur) kl. 20:30 á efra bílastæðinu á bak við Kaupþing í Borgartúni

11. september (þriðjudagur) kl. 20:30 á neðra bílastæðinu við Perluna

23. september (sunnudagur) kl. 20:30 á efra bílastæðinu á bak við Kaupþing í Borgartúni

9. október (þriðjudagur) kl. 20:30 á neðra bílastæðinu við Perluna

21. október (sunnudagur) kl. 20:30 á efra bílastæðinu á bak við Kaupþing í Borgartúni



Sunnudagssamkomur á bak við Kaupþing og Íbúðalánasjóð við Borgartún:
Image

Þriðjudagssamkomur við Perluna:
Image

PostPosted: Sat 06. Jan 2007 20:53
by ömmudriver
Frábært !!!! Ég kemst bara á miðvikudagssamkomurnar :squint: :x

PostPosted: Sat 06. Jan 2007 21:13
by siggir
ömmudriver wrote:Frábært !!!! Ég kemst bara á miðvikudagssamkomurnar :squint: :x


Það virðist nú vera normið að menn komist bara á miðvikudögum ;)

PostPosted: Mon 08. Jan 2007 20:32
by Danni
Jess ég kemst ekki á neina samkomu allavega framm í ágúst! Allavega er þetta sett upp þannig að þeir sem eru á A/C vakt í 2-2-3 vaktakerfi í vinnu verða alltaf að vinna daginn sem samkoma er. Þar sem ég er í Keflavík þá sé ég ekki frammá það að koma í vinnu 6 um morgun, vinna í 12 tíma straight (miðvikudagar eru uppteknustu dagarnir á mínum vinnustað) og vaka svo til kvöldmats, leggja þá af stað í bæinn á samkomu og vera kominn heim um 11-12 og fara að sofa til að mæta á næstu vakt morguninn eftir.

Ég veit, óþarfa nöldur, ég bara varð hehehe.

PostPosted: Mon 08. Jan 2007 20:36
by Einarsss
Danni wrote:Jess ég kemst ekki á neina samkomu allavega framm í ágúst! Allavega er þetta sett upp þannig að þeir sem eru á A/C vakt í 2-2-3 vaktakerfi í vinnu verða alltaf að vinna daginn sem samkoma er. Þar sem ég er í Keflavík þá sé ég ekki frammá það að koma í vinnu 6 um morgun, vinna í 12 tíma straight (miðvikudagar eru uppteknustu dagarnir á mínum vinnustað) og vaka svo til kvöldmats, leggja þá af stað í bæinn á samkomu og vera kominn heim um 11-12 og fara að sofa til að mæta á næstu vakt morguninn eftir.

Ég veit, óþarfa nöldur, ég bara varð hehehe.



getum við BREYTT áætlununni svo að danni komist ??? hann er ómissandi :!:


:wink:

PostPosted: Mon 08. Jan 2007 20:41
by Danni
Nei veistu ég held að þið lifið alveg af án mín :lol:

PostPosted: Tue 09. Jan 2007 08:06
by Mánisnær
11. mars (sunnudagur) kl. 14:00 á bílastæði við Laugardalsvöll


17 ára afmælis dagurinn, vonandi verð ég kominn á 325 þá8) :D

PostPosted: Tue 09. Jan 2007 09:57
by íbbi_
af hverju er janúar samkoman ekki færð inn í eitthvað bílastæðahúsið, alveg ómögulegt að standa úti í þessum kulda

PostPosted: Fri 29. Jun 2007 12:15
by iar
ATH! Breytt samkomudagatal!

Sunnudagssamkomurnar flytjast til kl. 20:30 og verða haldnar á bílastæðahúsinu á bak við Kaupþing og Íbúðalánasjóð við Borgartúnið

Miðvikudagssamkomurnar flytjast yfir á Þriðjudaga kl. 20:30 og verða haldnar á neðra bílastæðinu við Perluna.

Sjá nánar dagatal í fyrsta pósti í þessum þræði.

PostPosted: Fri 29. Jun 2007 12:52
by arnibjorn
Þetta er glæsilegt! 8)

PostPosted: Fri 29. Jun 2007 13:02
by Aron Fridrik
8) geggjað