bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

B&L samkoman - Snilld
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=1567
Page 1 of 2

Author:  Gunni [ Sat 24. May 2003 18:30 ]
Post subject:  B&L samkoman - Snilld

Jæja þá er samkoman góða búin. Það var rosalega gaman að koma til þeirra og fá að skoða aðstöðuna á verkstæðinu og sjá þá að verki. Ekki skemmdi fyrir að við fengum kortin góðu, þennan fína mat og ekki má gleyma því að nýja flotta heimasíðan okkar var opnuð :)

Kærar kveðjur til þessa frábæru starfsmanna B&L !

Author:  Halli [ Sat 24. May 2003 18:42 ]
Post subject: 

það fengu nú ekki allir meðlimakortin :cry:

Author:  Haffi [ Sat 24. May 2003 18:46 ]
Post subject: 

Ég var einmitt mjög ánægður með þesssa samkomu.

Og ekki skemmir að hann fann ekkert að bílnum nema Airbag sensorinn í sætinu farþegamegin er annaðhvort úr sambandi eða ónýtur.

Author:  Halli [ Sat 24. May 2003 19:11 ]
Post subject: 

þetta var glæsilegt í alla staði :lol: :lol:

Author:  bjahja [ Sat 24. May 2003 21:03 ]
Post subject: 

Frábær samkoma, rosalega mættu margir :shock:
En annars fékk maður svona ágætis niðurstöðu, ekkert stórt að.
:wink: Djöfull var gaman að sjá E39 alpinuna og allt draslið í 745 bílnum :shock:

Author:  Dr. E31 [ Sat 24. May 2003 21:24 ]
Post subject: 

Já, þetta var bara mjög gaman.

Author:  Djofullinn [ Sat 24. May 2003 22:28 ]
Post subject: 

Þetta var mögnuð samkoma og eiga mennirnir í B&L hrós skilið :wink:
Og til hamingju með þessa nýju og glæsilega heimasíðu og nýja lénið :D
Gaman að sjá báðar Alpinurnar og alla hina bimmana :shock:

Author:  saemi [ Sun 25. May 2003 03:34 ]
Post subject: 

Þetta var mjög gaman, sérstaklega að sjá alla sem mættu og gerðu þennan dag svona fjölmennan.

B&L á heiður skilinn fyrir veitingarnar og kortin, ásamt að taka öllum sem áttu pantaðan tíma í bilanagreininn. Ég held að allir hafi fengið úrlestur úr sínum bílum ásamt útlistun sinna vandamála ef einhver voru.

Ég hlakka bara til að sjá alla næst, gaman að sjá svona marga og spjalla um hjartans málefni við þá sem eru sama sinnis!

Sæmi

Author:  jonthor [ Sun 25. May 2003 13:41 ]
Post subject:  gaman

Já virkilega gaman að þessu 8)

Author:  Alpina [ Sun 25. May 2003 14:04 ]
Post subject: 

þetta var frábært



Sv.H

Author:  hlynurst [ Sun 25. May 2003 17:02 ]
Post subject: 

Þetta var langskemmtilegasta samkoma sem ég hef farið á... Lærði alveg helling um BMW! Og B&L á hrós skilið fyrir frábærann dag!!!!

Author:  Guest [ Sun 25. May 2003 19:12 ]
Post subject: 

Ég er dálítið svekktur yfir að hafa ekki komist þar sem það var gott útlit alveg frammá fimmtudag, en þá ákvað A4664 að það væri kominn tími á verkstæðisheimsókn. Svissinn orðin svo slitinn að lykillinn gekk ekki að honum og hann fór ekki í gang!

Hann var því dreginn á verkstæði á fimmtudagskvöldið. Þar verður hann þangað til ég fæ nýjan sviss:(

Vonandi var vel mætt - er einhver með tölu á fjöldann og myndir og svoleiðis?

Author:  Moni [ Sun 25. May 2003 21:11 ]
Post subject: 

Þetta var snilldar samkoma!!! Reyndar mín fyrsta og þetta fannst mér mjög gaman og fræðandi... :D

Author:  Jss [ Mon 26. May 2003 01:24 ]
Post subject: 

Það voru um 30 Bimmar á planinu, semsagt slatti af fólki. Skemmti mér mjög vel og gaman að sjá báðar Alpinurnar og að sjálfsögðu að fikta aðeins í nýju sjöunni.

Author:  bebecar [ Mon 26. May 2003 10:19 ]
Post subject: 

Þetta var ég loggaður inn sem gestur þarna fyrir ofan.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/