Page 1 of 2

B&L 24. maí kl 13:00 Dagskrá!

PostPosted: Tue 20. May 2003 11:19
by Gunni
Sælir félagar. Þá er loxins komið að því. Ég fékk póst frá Helgu varðandi B&L daginn, og hér læt ég textann flakka. Ég setti upp poll til að reyna að fá grófa tölu á þá sem ætla að mæta, ef þú ætlar ekki að mæta, krossaðu þá í ég kem ekki. þetta er til að athuga hvað þau þurfa að ná í mikið af snarli :)

--------------
BMW kraftur hjá B&L
- Félagakort afhent og kynning á BMW bilanagreininum

Laugardaginn 24. maí verður BMW Kraftdagur hjá B&L. Tilefnið er afhending félagakorta BMW Krafts en þau eru einnig afsláttarkort fyrir félagsmenn í B&L versluninni. Að afhendingunni lokinni verður farið í þjónustudeild B&L, þar sem kynning verður á BMW bilanagreininum, einum þeim fullkomnasta sinnar tegundar. Jafnframt geta félaga í BMW Krafti fengið ástandslestur á bílana sína í bilanagreininum sér að kostnaðarlausu. Hringdu í síma 575 1200
og skráðu þig í ástandslestur núna.

Gerðu þér BMW glaðan dag
BMW Kraftdagurinn hefst klukkan 13:00 í B&L versluninni. Þar tekur Ólafur Kr. Guðmundsson, verslunarstjóri, á móti félagsmönnum, en auk þess sem nýju félagakortin verða afhent, verður einnig létt snarl í boði. Laust fyrir klukkan 13:30 leiðir Atli Vilhjálmsson, þjónustustjóri B&L, hópinn inn á verkstæði, þar sem BMW sérfræðingar B&L kynna bilanagreininn og veita um leið ýmis fagleg ráð.

Þetta er því kjörið tækifæri fyrir alla þá sem vilja fá góða tæknilega innsýn í BMWinn sinn hjá fagmönnunum. Formlegri dagskrá lýkur síðan klukkan 14:00 en félagsmenn geta skráð sig í síma 575 1200 í ástandslestur í bilanagreininum sem mun standa frá klukkan 13:30 til 16:30.

Hefur áhuga á að komast í bilanagreininn?
Það er lítið mál að komast í ókeypis ástandslestur í bilanagreininum laugardaginn 24. maí nk. Þú hringir bara í síma 575 1200 og skráir bílinn þinn í lausan tíma.

Þar sem aðeins takmarkaður fjöldi kemst í ástandslesturinn er best að hringja sem fyrst til að tryggja sér lausan tíma.

--------------


Nú mæta vonandi sem flestir gríðar hressir og á æðislega hreinum BMWum 8)

PostPosted: Tue 20. May 2003 11:45
by saevar
Frábært, get valla beðið :D

En ég var búinn að skrá mig í bilunargreininguna hjá Sæma um daginn. Þarf ég samt að hringja ?

PostPosted: Tue 20. May 2003 11:48
by oskard
það er tekið þrisvarsinnum framm í þessum posti að það
þurfi að hringja... þannig að það hlýtur bara að vera :roll:

PostPosted: Tue 20. May 2003 11:57
by GHR
Sjá Sæmi og Gunni ekki bara um það :roll:

PostPosted: Tue 20. May 2003 12:15
by Gunni
neinei ef þú ert búinn að skrá þig hjá sæma þá þarftu ekki að hringja líka.

en þeir sem ætla að skrá sig héðan í frá hringja bara í B&L. OK?

PostPosted: Tue 20. May 2003 14:18
by saevar
OK, vildi bara vera safe :wink:

PostPosted: Tue 20. May 2003 15:23
by Raggi M5
Ef það verður ekki sól og blíða þá lem ég Ara Trausta veðurfræðing :evil:

PostPosted: Tue 20. May 2003 15:41
by Djofullinn
Þetta verður geðveikt gaman! Vonum bara að það verði sól :D
Þá er bara spurning á hvor bílnum maður nær að koma á :roll:

PostPosted: Tue 20. May 2003 16:05
by arnib
Djofullinn wrote:Þetta verður geðveikt gaman! Vonum bara að það verði sól :D
Þá er bara spurning á hvor bílnum maður nær að koma á :roll:

Ég held líka að ég ætla að lána arnib hinn bílinn svo hann
geti mætt á bimma!.


Vá, takk maður!! fallega gert!! :) 8) 8) 8) 8)

PostPosted: Tue 20. May 2003 16:06
by oskard
hehehehe :lol: :lol: :lol:

PostPosted: Tue 20. May 2003 16:10
by Djofullinn
arnib wrote:
Djofullinn wrote:Þetta verður geðveikt gaman! Vonum bara að það verði sól :D
Þá er bara spurning á hvor bílnum maður nær að koma á :roll:

Ég held líka að ég ætla að lána arnib hinn bílinn svo hann
geti mætt á bimma!.


Vá, takk maður!! fallega gert!! :) 8) 8) 8) 8)

lol ef þú lagar E21 bílinn fyrir mig þá máttu fá hann lánaðann :D

PostPosted: Tue 20. May 2003 16:18
by arnib
Djofullinn wrote:lol ef þú lagar E21 bílinn fyrir mig þá máttu fá hann lánaðann :D


:)
Að öllu gamni sleppt,
hvað er að honum ?

PostPosted: Tue 20. May 2003 16:25
by Djofullinn
arnib wrote:
Djofullinn wrote:lol ef þú lagar E21 bílinn fyrir mig þá máttu fá hann lánaðann :D


:)
Að öllu gamni sleppt,
hvað er að honum ?

Hann er mjög erfiður í gang og gengur eins og trunta þangað til hann er orðinn heitur

PostPosted: Tue 20. May 2003 17:31
by bjahja
arnib wrote:
Djofullinn wrote:Þetta verður geðveikt gaman! Vonum bara að það verði sól :D
Þá er bara spurning á hvor bílnum maður nær að koma á :roll:

Ég held líka að ég ætla að lána arnib hinn bílinn svo hann
geti mætt á bimma!.


Vá, takk maður!! fallega gert!! :) 8) 8) 8) 8)


haha, góður. ég var smá stund að fatta þetta :lol:

En djöfullinn hafi það ég er að vinna :x :evil: :( , mig lanar svvvooo mikið :( , ég ætlað að nuða í yfirmanni mínum þangað til hann gefur mér frí, annars hætti ég bara :P

PostPosted: Tue 20. May 2003 17:33
by oskard
thats the spirit!!! ;)