Page 1 of 2

Taka létt grill 1. maí ?

PostPosted: Tue 29. Apr 2003 16:28
by oskard
Ég var að spugulegra hvort það væri áhugi á því að mæta
með grill nirðrá höfn (sama stað og síðasta samkoma var)
og grilla og hafa smá samkomu um dag þegar það er bjart
úti. Það ættu vel flestir að vera í fríi og MBL er að segja að
veðrið ætti að vera í góðu :lol:

Mig langar svo rosalega að sjá bílana ykkar þegar það er
bjart úti ég hef bara séð bílana í myrkri

Hvað segiði um þetta?

PostPosted: Tue 29. Apr 2003 18:01
by bjahja
ohhh, ég er að fara í próf á föstudaginn :(
Annars væri ég vel til í þetta. Og ef þetta verður lítur maður kannski aðeins við :wink:

PostPosted: Tue 29. Apr 2003 18:45
by saemi
Ég er alveg til í mætingu 1maí, en er ekki viss um grill um miðjan dag, hvað þá niður á höfn :?

Rok og maður verður eins og krækiber í helvíti þarna niðurfrá......

En er alveg til í að hittazt og eða grilla annarsstaðar.

Sæmi

PostPosted: Tue 29. Apr 2003 18:54
by oskard
ég var svosem ekkrt búinn að pæla í því að það er nottla
fólk sem fer niðrí bæ skilst mér á 1. maí þannig að það
væri sniðugt að velja annan stað ;)

Bara einhverstðar þar sem að er þokkalegt skjól og plan til
að parka bílum :D

PostPosted: Tue 29. Apr 2003 19:31
by Gunni
ef einhver reddar stað og grilli þá er ég alveg game. Það verður samt að gerast fljótt ef það á að vera góð mæting, þetta er alltaf svo lengi að fara í gegn :)

PostPosted: Tue 29. Apr 2003 19:45
by Djofullinn
Úfff þetta er nú soldið stuttur fyrirvari :? En ef það verður af þessu reynir maður að mæta.

PostPosted: Tue 29. Apr 2003 20:00
by oskard
Ég á grill sem ég get kippt með mér bara spurning með stað
einhverjar hugmyndir ? :)

PostPosted: Wed 30. Apr 2003 00:04
by BMW 318I
er ekki bara málíð að fylla heiðmörkina af bimmum 8) 8) 8)

PostPosted: Wed 30. Apr 2003 00:12
by arnib
Ég er reyndar líka að fara í próf á fös, þannig að maður veit ekki alveg..
en mér finnst þetta brill hugmynd.

Reyndar alls ekki höfnin, á miðjum degi er auðvitað mikil umferð þar og rugl, en heiðmörkin hljómar alls ekki vitlaust! :)

PostPosted: Wed 30. Apr 2003 00:31
by Haffi
ég er maður í grill en vá það verður sko að vera stórt grill helzt bál miðað við "hitann" sem verður á fimmtud. !! ískalt ég mæti í brettagallanum !

PostPosted: Wed 30. Apr 2003 00:42
by BMW 318I
er bara ekki málið að hafa þetta þegar allir eru búnir í prófum og sollis, fyrir utan það að 2 dagar er alltof stuttur fyrir vari, það er allavega mín skoðun.

p.s. hvar skráir maður sig í klúbbin

PostPosted: Wed 30. Apr 2003 00:45
by oskard
mér datt þetta bara í hug útaf því að það er alltaf svo stór
hópur að vinna þegar það eru samkomur en það er lokað
á felstum stoðum 1.maí en miðað við undirtektir verður
varla neitt úr þessu.

PostPosted: Wed 30. Apr 2003 01:07
by saemi
Skella bara á svona "hittast" dæmi, þá geta allir sem vilja rennt við og kíkt á hvorn annan. Svo bara grillið seinna!

Sæmi

PostPosted: Wed 30. Apr 2003 01:27
by GHR
Hvaa eru allir að kvarta undir stuttum fyrirvara???? Maður er ekki lengi að setja lykilinn í svissinn og setja í gang, bruna út á næstu bensínstöð og fylla og skrúbba ef þess er þörf og keyra á mætingarstaðinn. Veit ekki um ykkur en ég þarf ekki margra viku fyrirvara til að stoppa smá tíma með bílinn í stæði og chjatta við aðra bílaáhugamenn :wink:

PostPosted: Wed 30. Apr 2003 03:31
by Heizzi
Hugmyndin er góð, Heiðmörkin væri ekki vitlaus staður en eins og fleiri þá er ég að fara í próf á föstudaginn...