bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hvernig væri að hafa litla samkomu á föstudag???
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=1190
Page 2 of 5

Author:  Svezel [ Fri 04. Apr 2003 20:12 ]
Post subject: 

Það mæta örugglega einhverjir kl. 0:00 :roll:

Author:  Haffi [ Fri 04. Apr 2003 21:03 ]
Post subject: 

hehe löggimann veit af þessu ;)

Author:  hlynurst [ Sat 05. Apr 2003 01:13 ]
Post subject: 

Haldiði ekki að karlinn hafi bara ekki skellt sér á rúntinn í kvöld... var nú aðallega að prufa nýju dekkin en stóðst ekki mátið og kíkti á Granda. Þetta passaði, menn voru að spyrna þarna eins og vitleysingar. Það var fullt af bílum að keyra þangað úr bænum þannig að menn vissu greinilega af þessu. Veit samt ekki hvernig þetta endaði en ég bíst við að löggan hafi stöðvað þetta því ég sá um 6-7 löggubíla á þessum klst langa rúnt. :roll:

Author:  Svezel [ Sat 05. Apr 2003 01:40 ]
Post subject: 

Ég leit þarna við og orð fá ekki líst hversu sorglegt þetta var. Ég held mér nú oftast vel frá og spyrnti ekki við neinn þótt ég hafi nú eiginlega tvisvar egnt menn upp (var aðalega að spá í prezu þarna).

Ég tel nú bara mestu mildi að slys hafi ekki orðið þegar ég var þarna því þetta var álíka skipulagt og niðurgangur. Svona lagað er betra að láta fagmenn skipuleggja og fá tilskyld leyfi því þetta var bara rugl. Ég held að ég hafi ekki séð nema svona 4 spyrnur og það voru alltaf sömu haugarnir.

Mér sýndist ég þó sjá B10 bílinn þarna og hann og bílinn hans flamatron voru flottustu bílarnir á svæðinu.

Author:  GHR [ Sat 05. Apr 2003 02:29 ]
Post subject: 

Hey, Svezel ég var líka þarna, var minn ekki flottur :lol:

Annars fannst mér þetta fint, fullt af spyrnum og maður fékk aðeins að leika sér við 325 bílinn hans Flamatron (Tomma)
Hann er bara að þrælvirka, tók mig meira segja í einni spyrnu (ég vann hann nú samt líka nokkuð oft :wink:

En mikið ósköp er B10 bíllinn að ÖSKRA ÁFRAM!!!!! Hvílík vinnsla og læti, núna fer maður sko að spara og kaupa sér eitt stykki 8)

GEÐVEIKUR BÍLAR * 10

B10 RULES

Fínn virkni í bílnum hjá þér Svezel, það vantar ekki kraftinn í sá bíl :wink:

Author:  Svezel [ Sat 05. Apr 2003 10:13 ]
Post subject: 

Mér sýndist ég sjá bílinn þinn þarna og hann var helvíti flottur. Ég sá þig bara einu sinni keyra framhjá þannig að ég hélt að þú hefðir bara rennt við. Magnað að sjá 700 bíl þarna sem getur tekið flesta í spyrnu þarna.

Já það er ansi massíf vinnsla í Alpinunni og hljóðin ekki amaleg.

Quote:
Fínn virkni í bílnum hjá þér Svezel, það vantar ekki kraftinn í sá bíl


Þakka þér fyrir það, verst að maður fékk ekki að spyrna við neinn :?

Author:  bjahja [ Sat 05. Apr 2003 12:55 ]
Post subject: 

Ég var að spyrna við Alpinuna áðan. Ég sá hann koma aftan að mér og beygði þar sem hann beygði, svo lenntum við á ljósum og hann svona aðeins keyrði fram og til baka. Svo skrúfaði hann niður rúðuna og vinur hans spurði hvort ég væri ekki til í að spyrna. Ég sagði "kannski smá" :lol: .
Síðan kom grænt og ég botnaði og skaust áfram, en hann greinilega botnaði hann ekki alveg því ég var á undan í svona 2 sek. Þá heyrði ég þetta svaðalega túrbínuhljóð og hann þaut fram úr mér. En ég er bara mjög sáttur við þessar 2 sek. 8)

P.s ég var einn í bíl en þeir voru 2 framí og mér 2 eða 3 stelpur afturí.

Author:  morgvin [ Sat 05. Apr 2003 14:45 ]
Post subject: 

Þetta er bara sudda kaggi og það er bara EVIL að eiga hann.

Author:  Haffi [ Sat 05. Apr 2003 15:44 ]
Post subject: 

hmmm semsagt einhver Ghettosmurf sem á þennan Alpina bíl með stútufllan bíl af kellingum á föstudagskveldi að rúnta í bænum.
Heitir gaurinn nokkuð Gunni sem á hann og er frá Patreksfirði ? :twisted:

Author:  flamatron [ Sat 05. Apr 2003 20:40 ]
Post subject: 

BMW 750IA wrote:
Annars fannst mér þetta fint, fullt af spyrnum og maður fékk aðeins að leika sér við 325 bílinn hans Flamatron (Tomma)
Hann er bara að þrælvirka, tók mig meira segja í einni spyrnu (ég vann hann nú samt líka nokkuð oft :wink:

já, á granda datt minn bara í spól í 1, og 2. gír. þannig að það var ekki séns að ná þér.!
En svo Seinni spyrnan spólaði hann ekki eins mikið, og þaut frammúr þér :twisted:
Gummi: Any time, any place. :wink:

Author:  hlynurst [ Sat 05. Apr 2003 20:49 ]
Post subject: 

Hva?? Voruð þið þarna? Ekki sá ég ykkur þegar ég keyrði þarna framhjá... kannski næst bara. :roll:

Author:  GHR [ Sat 05. Apr 2003 21:14 ]
Post subject: 

hlynurst wrote:
Hva?? Voruð þið þarna? Ekki sá ég ykkur þegar ég keyrði þarna framhjá... kannski næst bara. :roll:



Hey, varstu þarna??? Ég sá þig ekki :roll:



flamatron wrote:
BMW 750IA wrote:
Annars fannst mér þetta fint, fullt af spyrnum og maður fékk aðeins að leika sér við 325 bílinn hans Flamatron (Tomma)
Hann er bara að þrælvirka, tók mig meira segja í einni spyrnu (ég vann hann nú samt líka nokkuð oft :wink:

já, á granda datt minn bara í spól í 1, og 2. gír. þannig að það var ekki séns að ná þér.!
En svo Seinni spyrnan spólaði hann ekki eins mikið, og þaut frammúr þér :twisted:
Gummi: Any time, any place. :wink:



Já, Tommi, en hversu oft fór ég fram úr þér á ferðinni :wink:
Spól og spól, jaaa ekkert um það að segja nema kveikjuþráðurinn var laus eins og ég sagði ykkur um kvöldið :wink:
En samt er bíllinn þinn að virka mjög vel, en mér finnst þú mjög brattur að leyfa Tomma að NAUÐGA honum svona rosalega :? Bara reykurinn sem kom af bílnum :?

Þetta var nú samt gott spyrnukvöld og allir í ham :twisted: Maður varð bara hálf sjúkur. Já við þurfum að taka eitthvern tímann spyrnu aftur Tommi, var meira segja að bjóða í svona kubb (framleiðandinn lofaði mér 100% endurgreiðslu ef hann væri ekki að skila því sem sagði þ.e.a.s 37hö þannig að maður fer nú með hann í Dyno :wink:

Author:  flamatron [ Sat 05. Apr 2003 21:18 ]
Post subject: 

Ég segji það, ég sá bara Gumma & Svezel, og eintómar pústlausar gamla Hondur...
Enga aðra Bimma :?

Author:  hlynurst [ Sat 05. Apr 2003 21:21 ]
Post subject: 

Ég stoppaði mjög stutt við enda voru þetta næstum allt druslur sem ég sá... mér langaði að reyna að spyrna við einn þarna, Audi TT. En nennti ekki að vera að standa í þessu. Sá samt engan bimma þarna... :?

Author:  flamatron [ Sat 05. Apr 2003 21:28 ]
Post subject: 

Quote:
En samt er bíllinn þinn að virka mjög vel, en mér finnst þú mjög brattur að leyfa Tomma að NAUÐGA honum svona rosalega Bara reykurinn sem kom af bílnum

Hann veit að ef eithvað gerist þá eignast ég blæju Camaro :)
Hvaða kubb varstu að bjóða í.. sendu link hingað.!!
Já engilega spyrna aftur :twisted:
Já setja hann í DYNO fyrir og eftir kubbísetningu!

Page 2 of 5 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/