bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Stór samkoma!!!!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=1087
Page 3 of 4

Author:  saemi [ Mon 24. Mar 2003 18:59 ]
Post subject: 

Og ég verð úti :cry:

Sæmi

Author:  bjahja [ Mon 24. Mar 2003 19:59 ]
Post subject: 

Raggi M5 wrote:
Er semsagt planið að hittast í bænum, keyra til kef, og leika sér á Go-Kart brautinni? Spurning hvort maður bruni í bæinn og fljóti með hópnum eða bíði bara eftir ykkur? Hvað segir þið Gunni og Stebbi?


mér líst vel á þetta, þetta er frí helgin mín og allt.
Það væri nú stemmning ef þið kæmuð með okkur.

Author:  hlynurst [ Mon 24. Mar 2003 23:02 ]
Post subject: 

Humm... það virðast margir vera að vinna. Er svona dýrt að eiga BMW? :P

Author:  GHR [ Mon 24. Mar 2003 23:20 ]
Post subject: 

Verður fríhelgin mín þannig að ég get mætt (ef ég verð ekki orðinn próflaus) . Samt leiðinlegt hversu margir eru að vinna!!!

Author:  oskard [ Tue 25. Mar 2003 00:18 ]
Post subject: 

við verðum að hafa samkomu um PÁSKANA þá getur enginn sagst
vera að vinna. Og raggi fyrst að þú vinnur nú hjá gokart er þá
ekki séns að það sé hægt að hafa opið þar einn af þessum
"heilögu" dögum ? :D

Author:  arnib [ Tue 25. Mar 2003 00:26 ]
Post subject: 

Og þá geta allir komið með páskaegg!!

Ég styð páskana!

Author:  gstuning [ Tue 25. Mar 2003 00:51 ]
Post subject: 

Stebbi hefur sagt við mig að svona setup væri alltaf opið fyrir þótt að brautin væri lokuð´, ég fékk að fara nokkra hringi þarfna um daginn þegar eitthvað fólk var að gera sig til,

Hvað er tíminn þinn Raggi

Það er nóg pláss fyrir alla á brautinni,
Ekki vera party púper og sleppa að taka run, það er bara fílíngur

Menn hafa mætt á Cadillac ´57 á auto-x

Author:  Raggi M5 [ Tue 25. Mar 2003 00:58 ]
Post subject: 

oskard wrote:
við verðum að hafa samkomu um PÁSKANA þá getur enginn sagst
vera að vinna. Og raggi fyrst að þú vinnur nú hjá gokart er þá
ekki séns að það sé hægt að hafa opið þar einn af þessum
"heilögu" dögum ? :D


Ef ég þekki kallinn rétt þá myndi hann opna fyrir fólki sem myndi keyra á Aðfangadag þannig að....... :wink:


Og Gunni: Ég bara hef ekki prófað að taka tíma, við erum nebbla með tímatökubúnaðinn á brautinni í Garðabænum, hef bara verið að leika mér að taka slatta af hringjum og það er bara gaman 8)

Author:  bjahja [ Tue 25. Mar 2003 07:45 ]
Post subject: 

Ég hef aldrei komið þarna er svona mikið pláss á þessum brautum, uppí hvaða hraða fariði á brautinni er þetta ekki bara rétt rúmlega 1 gír?

Author:  gstuning [ Tue 25. Mar 2003 09:45 ]
Post subject: 

Nei þetta er frekar 2gír braut, þýðir ekkert að setja í 1gír, nema að hann sé langur, ég var bara í 2gír frá 40-80kmh, mega stuð get ég sagt,

Author:  Raggi M5 [ Tue 25. Mar 2003 09:50 ]
Post subject: 

Hún er 600m á lengd og 8m að breidd, maður notar fyrsta gírinn eiginlega mest, samt dáldið af öðrum líka.

Hérna er hægt að sjá góðar myndir af brautinni. Í myndahorninu.

Author:  Svezel [ Tue 25. Mar 2003 10:13 ]
Post subject: 

Minn er örugglega passlega stór á þessa braut :wink:

Hvenær má ég prófa?

Author:  Haffi [ Tue 25. Mar 2003 12:16 ]
Post subject: 

hmm ég er líka að vinna á páskunum :) ég tek að mér alladaga þar sem stórhátíðarálag nýtur sín :)

Author:  Jói [ Tue 25. Mar 2003 12:39 ]
Post subject: 

Brautin lítur svakalega vel út. Örugglega MJÖG gaman að fara þessa braut á almennilegum bíl. :mrgreen: Ég væri hinsvegar örugglega fljótari að fara hringinn gangandi heldur en á Mözdunni minni. :cry:

Ég sé fyrir mér Clioinn hans Svezel gera mjög góða hluti á þessari braut. :)

Image

Author:  Kull [ Tue 25. Mar 2003 13:33 ]
Post subject: 

Ég væri til í páskana, kemst ekki 5. apríl.

Page 3 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/