Page 1 of 4

VAKA

PostPosted: Tue 13. Jul 2010 21:55
by oddur11
fór þangan í dag að versla 17" dekk, flott verð ekkert hægt að segja útá það, en ég var að fylgjast með þegar það var verið að umfelga dekkið, hann átti voðalega erfit með að koma dekkinu á felguna.

þanig að ég labbaði að afgreiðsluborðinnu og sagði gaurnum þar að fara fram og segja honum að snúa felgunni við og setja svo dekkið á, (ég hef unnið á nokkrum dekkjarverkstæðum og hef oft lent í barsli við svona felgur og serstaklega þegar dekkinn eru lowprofil og stíf)

en gaurinn vildi ekki hlusta á þetta og þróskaðist við þetta áfram,
á meðan starði ég í gegnum glerið á hann og hrinsti hausinn, gafst svo upp eftir svona 15min og bað afgreiðslu manninn um að fara aftur fram og segja gaurnum að snúa felgunni við, loksins gerði hann það og dekkið komst á felguna...

var svo að fata það áðan að hann hefur djöflast svo mikið á dekkinu að það lekur meðfram kantinum, og núna þarf ég að fara og láta líma kantin á dekkinu og felgunni? :evil:

Re: VAKA

PostPosted: Tue 13. Jul 2010 22:17
by Dóri-
hann hefur örugglega teygt svo mikið kanntinum eða rifið hann

Re: VAKA

PostPosted: Tue 13. Jul 2010 22:17
by HjorturG
Var þarna um daginn að láta skipta um dekk á 17" felgum fyrir mig og það er einhver gæji sem þeir nota til að pressa dekkið einhvernvegin saman til að losa það af felunni. Gæjinn sem var að þessu var svo gjörsamlega vanhæfur, hitti aldrei á dekkið og fór alltaf með gæjann á felguna og rispaði þetta alveg heilmikið, alveg hræðileg vinnubrögð þarna og bókað að ég fari aldrei aftur þangað að láta umfelga fyrir mig!

Re: VAKA

PostPosted: Tue 13. Jul 2010 22:23
by kalli*
Slæmt hvað þessi menn eru ekki ''Vaka''ndi........ :lol: :lol:

Re: VAKA

PostPosted: Wed 14. Jul 2010 01:27
by oddur11
HjorturG wrote:Var þarna um daginn að láta skipta um dekk á 17" felgum fyrir mig og það er einhver gæji sem þeir nota til að pressa dekkið einhvernvegin saman til að losa það af felunni. Gæjinn sem var að þessu var svo gjörsamlega vanhæfur, hitti aldrei á dekkið og fór alltaf með gæjann á felguna og rispaði þetta alveg heilmikið, alveg hræðileg vinnubrögð þarna og bókað að ég fari aldrei aftur þangað að láta umfelga fyrir mig!


ég fer aldrei þangað aftur með neit í sambandi við felgur eða dekk, kannski bara til að kaupa ódýr dekk

Re: VAKA

PostPosted: Wed 14. Jul 2010 09:56
by gardara
Mér dettur ekki í hug að fara annað en í bílabúð benna til að láta umfelga flottar felgur... Þar sem þeir eru víst þeir einu á landinu sem bjóða upp á "snertilausa" umfelgun.

Re: VAKA

PostPosted: Wed 14. Jul 2010 19:44
by wortex80
Keypti í vor 2 18'' frammdekk á bimmann það tók þessi grey 40 mínútur að setja þessi dekk á, var orðinn smeykur um að þeir myndu klúðra þessu á endanum þegar þeir voru 4 á einni felgu með kúbeinin á lofti :lol: en þetta tókst á endanum en mun aldrei hleypa þessum gæjum nálægt mínum bílum aftur!!!!

Re: VAKA

PostPosted: Wed 14. Jul 2010 22:53
by 98.OKT
gardara wrote:Mér dettur ekki í hug að fara annað en í bílabúð benna til að láta umfelga flottar felgur... Þar sem þeir eru víst þeir einu á landinu sem bjóða upp á "snertilausa" umfelgun.


nei þeir eru ekki þeir einu, Max1 er með þrjár svona vélar, og einnig eru flest betri dekkjaverkstæði á landinu með master vélar :wink:

Re: VAKA

PostPosted: Thu 15. Jul 2010 00:55
by HjorturG
oddur11 wrote:
HjorturG wrote:Var þarna um daginn að láta skipta um dekk á 17" felgum fyrir mig og það er einhver gæji sem þeir nota til að pressa dekkið einhvernvegin saman til að losa það af felunni. Gæjinn sem var að þessu var svo gjörsamlega vanhæfur, hitti aldrei á dekkið og fór alltaf með gæjann á felguna og rispaði þetta alveg heilmikið, alveg hræðileg vinnubrögð þarna og bókað að ég fari aldrei aftur þangað að láta umfelga fyrir mig!


ég fer aldrei þangað aftur með neit í sambandi við felgur eða dekk, kannski bara til að kaupa ódýr dekk


Heyrði einhvernstaðar að þeir ættu að vera ódýrari, en neini alveg jafn dýrt og svo bara hræðilega illa gert. Fer aldrei þangað aftur!

Re: VAKA

PostPosted: Thu 15. Jul 2010 08:32
by gardara
98.OKT wrote:
gardara wrote:Mér dettur ekki í hug að fara annað en í bílabúð benna til að láta umfelga flottar felgur... Þar sem þeir eru víst þeir einu á landinu sem bjóða upp á "snertilausa" umfelgun.


nei þeir eru ekki þeir einu, Max1 er með þrjár svona vélar, og einnig eru flest betri dekkjaverkstæði á landinu með master vélar :wink:



nújæja, gott að vita :)

Re: VAKA

PostPosted: Tue 27. Jul 2010 15:04
by Arnar 540
fór þarna með M5 .. orginal felgurnar og var verið að setja ný dekk..hann snéri felguni öfugt i vélina sem er eðlilegt..enn hann setti ekkert tilað verja kantinn .. svo festist felgan en græjan snérist ennþá og tók allt lakk af kantinumm og afgreiðslugaurinn reif bara kjaft

Re: VAKA

PostPosted: Tue 27. Jul 2010 16:40
by Aron Andrew
Hvað eruð þið samt að spá að fara með fínar felgur í Vöku? Þetta er algjört stálfelguverkstæði

Re: VAKA

PostPosted: Tue 27. Jul 2010 17:02
by oddur11
ég fann ódýr dekk, og felgurnar mínar eru ekki fínar eins og er :P

Re: VAKA

PostPosted: Tue 27. Jul 2010 20:23
by Alpina
Aron Andrew wrote:Hvað eruð þið samt að spá að fara með fínar felgur í Vöku? Þetta er algjört stálfelguverkstæði



Já... held að þetta segi allt sem þarf :lol:

Re: VAKA

PostPosted: Tue 27. Jul 2010 22:34
by Ásgeir
Arnar 540 wrote:fór þarna með M5 .. orginal felgurnar og var verið að setja ný dekk..hann snéri felguni öfugt i vélina sem er eðlilegt..enn hann setti ekkert tilað verja kantinn .. svo festist felgan en græjan snérist ennþá og tók allt lakk af kantinumm og afgreiðslugaurinn reif bara kjaft



Hvenær var þetta og þú mátt endilega senda mér pm með hver var að afgreiða þig.


Annars man ég nú eiginlega eftir ykkur öllum og afsaka öll óþægindi, við erum ennþá að bæta okkur og erum meðal annars búnir að kaupa snertilausa vél sem á bara eftir að setja upp. Við erum alls ekki bara stálfelguverkstæði, slysin eiga það bara því miður til að gerast og gerast örugglega líka á öðrum dekkjaverkstæðum. Þetta sem þið nefnið hérna er aðeins smá brot af stórum felgum sem við höfum tekið og flest hefur nú gengið mjög vel, leiðinlegt hvað það eru margir sem hafa lent í slæmu hérna á kraftinum.
Við erum að bæta okkur þannig alls ekki afskrifa okkur, mér finnst mjög gaman þegar kraftsmenn koma með bílana sína. :wink:

Kveðja