Einar Vti wrote:
í kringum 2 samadag hringja þeir í mig og tilkynna mér að það sé búið að eyða 2 tímum (25.000kr) í að skoða þetta með throttleboddyið og telja þeir að þurfi bara að þrífa það. sem ég var búinn að nefna við þá, þá spyr ég útí skynjarann og seigir hann að þeir séu ennþá að reyna athuga hvort að hann sé til, að þeir nái ekki á varahlutaversluninni hjá BL sem er frekar slapt því þeir eru með mjög gott þjónustuver.
þannig að ég læt hringja fyrir mig í vissan aðila sem ég vil ekki gefa upp nafnið á hér ánþess að ræða við hann og reddar hann rofanum og maður frá eðalbílum sækir hann í BL og ég fer þangað og greiði fyrir rofann.
rétt fyrir lokun seigja þeir mér að þetta hafi ekki verið rofinn að þeir hafa sett hann í og ennþá verið villan og að þeir hafi teingt aðra ssk tölvu við bílinn og þá hefði villan farið og þetta væri bara tölvan skemmd og að þeir taki svo 2 aðra tíma við að þrífa upp throttle boddyið þá seigi ég nei takk og geri það sjálfur ! ég greiði þeim 3 vinnustundir fyrir þessa skoðun.
þannig að með góðum leiðbeiningum frá þeim finn ég nýja ssk tölvu frá þeim panta hana og fæ hana heim, hendi henni í og vitið menn villan fór ekki.
þá gróf ég upp kassan af nýja rofanum og er hann innsiglaður ennþá eins og þeir hafi aldrei sett hann í til að prufa hann þó svo að það standi í skýrslunni.
Eftir allt þetta sit ég uppi með enga bætingu á bílnum nema að hann skánaði við að þrífa throttle boddyið sem ég gerði sjálfur í skúrnum hjá mér.
Sit uppi með tvær allveg eins tölvur fyrir sjálfskiptingar sem virka greinilega báðar jafn vel $$$
sit uppi með ónotaðan rofa sem er ekki hægt að skila þvi þetta sé rafvara erfitt að skila þannig
og er ég mjög ósáttur með þetta !
Fannst það endilega á þessum pósti, en þegar að ég les það yfir aftur nefnir hann hvergi að hafa haft samband við þá aftur...
Alveg pottþétt hægt að fá viðgerðina endurgreidda ef að hún hefur ekki verið framkvæmd, held að innsiglaði kassinn segi best til um það...
Annars er það rétt gunnar, það er allt hægt ef að viljinn er fyrir hendi... fæst orð bera minnsta ábyrgð samt, en ég les þetta sem skot frá þér á vanfærni mína til þess að lesa póstinn hans betur...