by Danni » Sat 27. Sep 2014 19:25
Fór þangað með 328i að láta skipta um púst fyrr í vikunni.
Fyrst var bíllinn settur á lyftu og ég sýndi þeim nákvæmlega hvað þurfti að gera og fékk verð í það (var með annað púst með mér í lagi, þurfti að taka gamla úr, nýja í og sjóða saman.
Ég spurði um verð, hann sagði ca 15-18þús. Þá sagði ég að ef það yrði ekki of dýrt að setja þá flangsa líka svo ég geti tekið pústið úr sjálfur ef ég þarf þess, sem og nýjar upphengjur. Hann stakk uppá því að byrja bara og sagðist ætla að hringja ef það liti út fyrir að verðið færi yfir 30þús sem ég samþykkti. Síðan bað ég um að henda ekki gamla pústinu þar sem það ætti að nota það í smá mix föndur á öðrum bíl.
Fékk ekkert símtal allan daginn frá þeim svo ég fór bara að sækja hann rétt fyrir lokun. Þá tjáði hann mér að starfsmaðurinn sem vann við þetta hafi bara ekkert spáð í verðinu og að total kostaði þetta 52 þúsund, sem hann lækkaði í einhvern 46 þús til að vera góður við mig. Og síðan þegar ég ætlaði að fá gamla pústið þá var hann bara með aftari helminginn af því, sagðist hafa bútað niður fremri helminginn. Sem ég skil ekki hvers vegna, þar sem það þurfti bara að skera það á einum stað og taka það úr. Það voru nýjir hlutir á fremri helmingnum sem átti að nota í annað en þeim var víst bara hent.
En vinnubrögðin voru top notch. Ég setti bílinn á lyftu og skoðaði þetta og þetta er mjög vel gert. Flangsar á góðum stað svo ég get tekið pústið úr í heild sinni þegar ég þarf t.d. að skipta um kúplingu. Suðurnar flottar og allt eins og ég vil hafa það svo ég skil alveg að þetta hafi kostað, þannig ég get ekki kvartað mikið yfir verðinu. Bara því að umtalað verð var fyrst 15-18þús, síðan ekki yfir 30þús en það endaði samt á að lokaverð var 15þús yfir það sem þetta átti alls ekki að fara yfir án þess að hafa samband. Þannig ég kom þarna korter í lokun að búast við max 30þús og tilbúinn fyrir það, en síðan var lokaverð 16þús kalli yfir hámarkinu. Sem var smá vesen, en reddaðist alveg.
Overall er ég sáttur, en hefði viljað fá raunhæft verðmat til að byrja með.
Danni
'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi