bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Akstursæfing DDA 11.júlí
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=66719
Page 1 of 1

Author:  siggigunni [ Wed 09. Jul 2014 11:28 ]
Post subject:  Akstursæfing DDA 11.júlí

Akstursæfing DDA 11. Júlí 2014
Image

Umgengni á svæðinu hefur verið til háborinnar skammar undanfarið og
viljum við því ítreka nokkra hluti!
-Reykingar eru stranglega bannaðar!
-Meðferð áfengra drykkja er stranglega bönnuð!
-Stranglega bannað er að henda rusli!
-Þeir sem fara útaf þurfa að láta vita og hjálpa til
að sópa eftir sig!
Ef ekki er farið eftir þessum reglum verður fólk einfaldlega bannað
frá því að mæta á viðburði hjá DDA.

Allar tegundir af bílum velkomnar, sama hvort þeir séu fram-, aftur- eða fjórhjóladrifnir.
Hvort sem fólk vill spóla eða æfa brautarakstur.
Brautin opnar kl. 19:00 og hættum við að keyra um kl. 22:00
Þau skilyrði sem bíll og ökumaður þurfa að uppfylla:
• Bíll með fulla skoðun.
• Gilt ökuskírteini.
• Löglegur hjálmur.
• Viðkomandi þarf að vera meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
• Nagladekk eru stranglega bönnuð.
• Tryggingaviðauka!, enginn viðauki þýðir að þú færð ekki að keyra!!


*ATH* Rallýcrossmenn sem vija koma og æfa þið þurfið að hafa eftirfarandi í huga:
• Mæta með belti, búr og annað á bílnum í lagi.
• Mæta klæddir eins og þið séuð að fara að keyra í keppni!
• Við keyrum aðeins malbik, Vinsamlegast virðið það!
• Hjálpa til að sópa og slíkt.
• Ekki skera beygjur eins og brjálæðingar þó svo að við nennum ekki að setja upp tunnur!
• Vera skráðir í klúbb hjá AÍH


Ef þú keyrir útaf eða verður eitthvernvegin þess valdur að það fari möl á brautina, stoppaðu og hjálpaðu til að sópa!
það verður hellings rennerí og óþolandi að það komi í hlut tveggja manna að sópa eftir alla, það styttir líka biðtíma!


******ATH******
Hafið samband við ykkar tryggingafélag og fáið hjá þeim tryggingaviðauka, þó svo að þeir segji að þess þurfi ekki þá er það ekki satt.

ENGINN keyrir án viðauka!! :)

Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram uppá braut, Vinsamlegast komið með seðla.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Það keyrir enginn án miða!

Hægt er að kaupa æfingapassa fyrir sumarið, hann kostar 15.000kr

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
(síðan liggur niðri svo annað hvort millifæra eða borga á staðnum)
Árgjaldið er það sama og í fyrra 5000 kr.
Hægt að millifæra eða borga uppá braut, fyrsta æfing er frí! Ef þið millifærið munið að koma með kvittun!

Séu þið skráðir í annað félag verðið þið að mæta með skírteini eða kvittun þess efnis!

Driftdeild AÍH
Bnknr. 322-26-25262
Kt. 450109-0880



Áhorfendur athugið:
Vinsamlegast leggið bílum ykkar hægramegin við brautina og gangið svo að áhorfendasvæði
Áhorfendum er einning frjálst að ganga niður í pitt
Vinsamlegast keyrið varlega á malarveginum uppá braut.


Image

Rauðu svæðin tákna þau svæði sem áhorfendum er frjálst að vera á og leggja,
blá svæðið er pitturinn og þar eiga einungis bílar að leggja sem ætla að keyra! vinsamlegast virðið það.

Brot á þessum og öllum reglum DDA varðar brottvísun af svæðinu!

Fyrir þá sem ekki vita hverning komast skal á leiðarenda.
Image

Mjög góð mæting búin að vera og frábær stemning:
[url]
[/url]
Image

Fyrir hönd DDA.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/