bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Nýliða-/Leikdagur DDA 6.Júní(frítt að keyra!!)*LESA VEL*
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=66388
Page 1 of 1

Author:  jonbi [ Mon 02. Jun 2014 22:16 ]
Post subject:  Nýliða-/Leikdagur DDA 6.Júní(frítt að keyra!!)*LESA VEL*

Nýliðadagur/Leikdagur DDA 6. Júní 2014
Image

Jæja þá er loksins komið að því!, nýliðadagur DDA verður haldinn hátíðlegur á brautinni í krýsuvík,
leiðbeiningar hverning þú kemst þangað eru hér aðeins neðar.


Það verður frítt að keyra fyrir alla sem vilja, athugið þó að ákveðnar reglur gilda og þurfa menn að uppfylla ákveðin skilyrði.
þau má sjá hér að neðan. Svo að að það sé alveg örugglega tekið nóg og oft fram þurfa menn viðauka, enginn keyrir án viðauka.
pullur og með því eins og endist! gerum nú allt vitlaust og spólum fram á rauða nótt!


Uppsettningin verður svipuð og á æfingum:

Allar tegundir af bílum velkomnar, sama hvort þeir séu fram-, aftur- eða fjórhjóladrifnir.
Hvort sem fólk vill spóla eða æfa brautarakstur.
Brautin opnar kl. 18:00 og hættum við að keyra um kl. 22:00
Þau skilyrði sem bíll og ökumaður þurfa að uppfylla:
• Bíll með fulla skoðun.
• Gilt ökuskírteini.
• Löglegur hjálmur.
• Nagladekk eru stranglega bönnuð.

Tryggingaviðauka!, enginn viðauki þýðir að þú færð ekki að keyra!!

Ef þú keyrir útaf eða verður eitthvernvegin þess valdur að það fari möl á brautina, stoppaðu og hjálpaðu til að sópa!
það verður hellings rennerí og óþolandi að það komi í hlut tveggja manna að sópa eftir alla, það styttir líka biðtíma!

Stranglega bannað er að snúa við í brautinni! og gildir þá einu hvort þú ert einn eða ekki. ef þú vilt fara öfugan hring þá kemur þú inní pitt og biður um það.

*ATH* Rallýcrossmenn sem vija koma og æfa þið þurfið að hafa eftirfarandi í huga:
• Mæta með belti, búr og annað á bílnum í lagi.
• Mæta klæddir eins og þið séuð að fara að keyra í keppni!
• Við keyrum aðeins malbik, Vinsamlegast virðið það!
• Hjálpa til að sópa og slíkt.
• Ekki skera beygjur eins og brjálæðingar þó svo að við nennum ekki að setja upp tunnur!
• Vera skráðir í klúbb hjá AÍH




******ATH******
Hafið samband við ykkar tryggingafélag og fáið hjá þeim tryggingaviðauka, þó svo að þeir segji að þess þurfi ekki þá er það ekki satt.


Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.



Áhorfendur athugið:
Vinsamlegast leggið bílum ykkar hægramegin við brautina og gangið svo að áhorfendasvæði
Áhorfendum er einning frjálst að ganga niður í pitt
Vinsamlegast keyrið varlega á malarveginum uppá braut.


Image

Rauðu svæðin tákna þau svæði sem áhorfendum er frjálst að vera á og leggja,
blá svæðið er pitturinn og þar eiga einungis bílar að leggja sem ætla að keyra! vinsamlegast virðið það.

Brot á þessum og öllum reglum DDA varðar brottvísun af svæðinu!

Fyrir þá sem ekki vita hverning komast skal á leiðarenda.
Image


Fyrir hönd DDA.
Jón Bjarni Bjarnason

Author:  tinni77 [ Thu 05. Jun 2014 16:48 ]
Post subject:  Re: Nýliða-/Leikdagur DDA 6.Júní(frítt að keyra!!)*LESA VEL*

Þetta er á morgun,

stefnir í svaðalega mætingu.

Author:  Alpina [ Fri 06. Jun 2014 23:37 ]
Post subject:  Re: Nýliða-/Leikdagur DDA 6.Júní(frítt að keyra!!)*LESA VEL*

Þetta var ÆÐISLEGT..........

Allrs starfsmenn DDA eiga heiður skilið fyrir framúrskarandi framtak

SLÖNGUR og gos í boði ............

:thup: :thup: :thup:

:clap: :clap: :clap: :clap:


ps,,, Sæmi Boom fékk afmælis-söng,, í tilefni 50 ára afmælis :thup:

Author:  Páll Ágúst [ Sat 07. Jun 2014 00:50 ]
Post subject:  Re: Nýliða-/Leikdagur DDA 6.Júní(frítt að keyra!!)*LESA VEL*

Þvílík stemmning! :thup:

Geðveikt veður, fullt af fólki og bílum og fríar pullur og gos!

gerist ekki betra held ég

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/