bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25 apr
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=65940
Page 1 of 2

Author:  tinni77 [ Wed 23. Apr 2014 09:10 ]
Post subject:  Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25 apr

Akstursæfing DDA Föstudaginn 25. apríl 2014
Image
Image



Allar tegundir af bílum velkomnar, sama hvort þeir séu fram-, aftur- eða fjórhjóladrifnir.
Hvort sem fólk vill spóla eða æfa brautarakstur.
Brautin opnar kl. 18:00 og hættum við að keyra um kl. 22:00
Þau skilyrði sem bíll og ökumaður þurfa að uppfylla:
• Bíll með fulla skoðun.
• Gilt ökuskírteini.
• Löglegur hjálmur.
• Viðkomandi þarf að vera meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
• Nagladekk eru stranglega bönnuð.
• Vera með trygginaviðauka! enginn viðauki þýðir að þú færð ekki að keyra!!!


*ATH* Rallýcrossmenn sem vilja koma og æfa þið þurfið að hafa eftirfarandi í huga:
• Mæta með belti, búr og annað á bílnum í lagi.
• Mæta klæddir eins og þið séuð að fara að keyra í keppni!
• Við keyrum aðeins malbik, Vinsamlegast virðið það!
• Hjálpa til að sópa og slíkt.
• Ekki skera beygjur eins og brjálæðingar þó svo að við nennum ekki að setja upp tunnur!
• Vera skráðir í klúbb hjá AÍH


Ef þú keyrir útaf eða verður eitthvernvegin þess valdur að það fari möl á brautina, stoppaðu og hjálpaðu til að sópa!
það verður hellings rennerí og óþolandi að það komi í hlut tveggja manna að sópa eftir alla, það styttir líka biðtíma!

******ATH*******
Hafið samband við ykkar tryggingafélag og fáið hjá þeim tryggingaviðauka, þó svo að þeir segji að þess þurfi ekki þá er það ekki satt.


Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram uppá braut, Vinsamlegast komið með seðla.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Það keyrir enginn án miða!

Hægt er að kaupa æfingapassa fyrir sumarið, hann kostar 15.000kr

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
(síðan liggur niðri svo annað hvort millifæra eða borga á staðnum)
Árgjaldið er það sama og í fyrra 5000 kr.
Hægt að millifæra eða borga uppá braut, fyrsta æfing er frí! Ef þið millifærið munið að koma með kvittun!

Driftdeild AÍH
Bnknr. 322-26-25262
Kt. 450109-0880



Áhorfendur athugið:
Vinsamlegast leggið bílum ykkar hægramegin við brautina og gangið svo að áhorfendasvæði
Áhorfendum er einning frjálst að ganga niður í pitt!
Vinsamlegast keyrið varlega á malarveginum uppá braut.

Image

Rauðu svæðin tákna þau svæði sem áhorfendum er frjálst að vera á og leggja,
blá svæðið er pitturinn og þar eiga einungis bílar að leggja sem ætla að keyra! vinsamlegast virðið það.

Brot á þessum og öllum reglum DDA varðar brottvísun af svæðinu!

Fyrir þá sem ekki vita hverning komast skal á leiðarenda.
Image

Mjög góð mæting búin að vera og frábær stemning:

[video=youtube;2OsbZ6BSJPs]http://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=2OsbZ6BSJPs[/video]
Image

Fyrir hönd DDA.

Kv Tinni.

Author:  SteiniDJ [ Wed 23. Apr 2014 10:07 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfing Sumardaginn Fyrst

Djö, nú er tími til að grafa upp spóldekkin og fara að selja. :D

Author:  tinni77 [ Wed 23. Apr 2014 12:28 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

ATH Breytt dagsetning

Author:  rockstone [ Wed 23. Apr 2014 12:31 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

tinni77 wrote:
ATH Breytt dagsetning


afhverju breyta?

Author:  tinni77 [ Wed 23. Apr 2014 12:32 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

Go-Kart deildin var víst búin að bóka brautina á morgun, svo............

Author:  Páll Ágúst [ Wed 23. Apr 2014 12:53 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

Mikið betri dagsetning! :thup:

Author:  Audrius [ Wed 23. Apr 2014 18:07 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

Páll Ágúst wrote:
Mikið betri dagsetning! :thup:
Mjög samála því :thup:

Ef ég las þetta rétt þá er þetta frítt fyrir áhorfendur eða er ég að lesa vitlaust ?

Author:  rockstone [ Wed 23. Apr 2014 18:17 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

Audrius wrote:
Páll Ágúst wrote:
Mikið betri dagsetning! :thup:
Mjög samála því :thup:

Ef ég las þetta rétt þá er þetta frítt fyrir áhorfendur eða er ég að lesa vitlaust ?


Frítt fyrir áhorfendur á æfingar, kostar á keppnir.

Author:  tinni77 [ Thu 24. Apr 2014 16:09 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

rockstone wrote:
Audrius wrote:
Páll Ágúst wrote:
Mikið betri dagsetning! :thup:
Mjög samála því :thup:

Ef ég las þetta rétt þá er þetta frítt fyrir áhorfendur eða er ég að lesa vitlaust ?


Frítt fyrir áhorfendur á æfingar, kostar á keppnir.


Nýtt nýtt!

Frítt einnig fyrir áhorfendur á keppnir!!

Author:  rockstone [ Thu 24. Apr 2014 16:11 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

tinni77 wrote:
rockstone wrote:
Audrius wrote:
Páll Ágúst wrote:
Mikið betri dagsetning! :thup:
Mjög samála því :thup:

Ef ég las þetta rétt þá er þetta frítt fyrir áhorfendur eða er ég að lesa vitlaust ?


Frítt fyrir áhorfendur á æfingar, kostar á keppnir.


Nýtt nýtt!

Frítt einnig fyrir áhorfendur á keppnir!!

:thup: :thup: :thup:

Author:  Audrius [ Thu 24. Apr 2014 16:26 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

Hvenær eru keppnirnar í þessu ?

Author:  lambi1 [ Thu 24. Apr 2014 22:47 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

ATH, til þess að fá að keyra þarf að vera með annaðhvort félagsskítreini eða kvittun fyrir greiðslu á meðlima gjöldum!

Hægt er að skrá sig í DDA annað hvort áður en komið er uppeftir og koma með kvittun fyrir því eða borga á staðnum.
5000kr í félagið og fyrsta æfing frí, hver æfing á 1000kr eftir það.
KOMA ÞARF MEÐ SEÐLA.

Author:  Páll Ágúst [ Thu 24. Apr 2014 22:50 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

lambi1 wrote:
ATH, til þess að fá að keyra þarf að vera með annaðhvort félagsskítreini eða kvittun fyrir greiðslu á meðlima gjöldum!


félagsskirteini kraftsins?

Þarf maður ekki að vera í e-h öðru félagi líka?

Author:  lambi1 [ Thu 24. Apr 2014 22:55 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

Félagi innan AÍH, stendur allt í auglýsingunni ;)

Author:  Páll Ágúst [ Fri 25. Apr 2014 23:46 ]
Post subject:  Re: Sumarið er komið!! Fyrsta akstursæfingin föstudaginn 25

Mætingin var svakaleg :thup: 8) (áhorfendur þá hehe)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/