bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
engin íslandsmeistarakeppni!! leikdagur mæting klukkan 14:00 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=62646 |
Page 1 of 1 |
Author: | siggigunni [ Mon 05. Aug 2013 19:35 ] |
Post subject: | engin íslandsmeistarakeppni!! leikdagur mæting klukkan 14:00 |
Þriðja Íslandsmeistarakeppni í Drifti fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg Laugardaginn 10. ágúst. ![]() http://www.flickr.com/photos/danniornsmarason/ Keppni hefst kl 16:00 og það kostar 500 kr inn fyrir áhorfendur. (frítt fyrir 12 ára og yngri) Áhorfendur leggjið við áhorfendasvæði!, öll umferð um pitt eða braut er stranglega bönnuð! Haldið ykkur við leyfileg áhorfendasvæði( þau eru merkt!) Dagskrá: 14:00 Dómarar gefa út svæðið og æfingar hefjast. 15:30 Æfingum lýkur og hádgishlé hefst 16:00 Undankeppni hefst 17:00 Útsláttarkeppni hefst Það er frjáls mæting fyrir keppendur á æfinguna, en þó þurfa þeir að vera mættir fyrir kl 15:30 Skráning er hafin. Til að skrá sig þarf að senda mail á drift@drift.is Í mailinu þarf að koma fram: Nafn ökumanns: Bílnúmer ökutækis: Gerð ökutækis: Símanúmer ökumanns: símanúmer og nafn aðstandanda: keppnisgjaldið eru litlar 4.000kr og leggjast þær inn á: Rkn: 545-14-404231 Kt: 611002-2030 vinsamlegast sendið afrit á okkur. Skráningu lýkur kl 15:00 föstudaginn 09. ágúst. Til að keppa þarf eftirfarandi að vera í lagi!!: Bíll með fulla skoðun, ef hann er með endurskoðun má ekki vera sett út á öryggisatriði og við höfum fullan rétt á að vísa bílum frá í vafamálum. Mæta með löglegan hjálm(þarf að vera þræddur) Mæta með ökuskírteini!(þetta er no brainer!) vera félagi í einhverju af aðildarfélögum ÍSÍ (t.d. BA, DDA, RCA, KK) Vera með Tryggingaviðauka*! Vera með keppnisskírteini frá ÍSÍ *Tryggingafélagið þitt gæti sagt þér að þú þurfir ekki viðauka, þetta er ekki satt og krefðu þá um að fá það skriflegt að þú þurfir hann ekki, annars skaltu krefja þá um viðauka. Hann er ekki fyrir bílinn þinn eða neitt svoleiðis heldur til þess að tryggja það tjón sem þú gætir valdið á fólki!. Hann er mjög mikilvægur!!! Við vekjum athygli á því að kaupa þarf keppnisskírteini frá ÍSÍ hér er það keypt: http://www.asisport.is/umsoknir/keppnisskirteini/ Og prenti svo út kvittun fyrir greiðslunni og mæti með í keppni. Eða sendið hana á tölvupóst. Til að útskýra aðeins verðskránna þeirra: Keppendur á ökutæki sem er: 1) skráð hjá Samgöngustofu til notkunar í almennri umferð 2) er fullskoðað og stenst bifreiðaskoðun á keppnisstað 3) hefur gildan tryggingarviðauka til þátttöku í aksturkeppni að greiða sem hér segir: i. kr. 5.000 í upphafi fyrir ákveðna keppni og gildir í hana eingöngu ii. endurnýjun fyrir keppni eftir fyrstu kr. 1.500 í hvert sinn. *) þú borgar 5000 fyrir fyrstu keppnina og svo 1500kr fyrir hverja keppni eftir það. Ef þú ert nýliði kaupir þú nýliðaskírteini: Nýliðaskírteini (aldrei keppt áður) - Gildir til 31. desember útgáfuárs 4000 ATH þeir sem keyptu skírteini á 15.000kr geta fengið það endurgreitt hjá AKÍS! Þeir sem borguðu um daginn eiga inni hjá okkur keppnisgjald Ef einhverjar spurningar koma upp er um að gera að spyrja hér á þræðinum, pm, á facebook, eða tölvupóst! Driftdeildin: http://www.drift.is Driftdeildin á facebook : https://www.facebook.com/pages/Driftdei ... 51?fref=ts Kv. Sigurður Gunnar Sigurðsson email: sigurdur@drift.is fh. Driftdeildar AÍH |
Author: | siggigunni [ Tue 06. Aug 2013 11:11 ] |
Post subject: | Re: Þriðja Íslandsmeistarakeppni í Drifti 11. ágúst. 2013 |
*****ATH****** keppni færist aftur um 3 tíma, sjá meira í póstinum! |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |