Page 1 of 2

Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Sun 24. Mar 2013 22:48
by siggigunni
Akstursæfing DDA 27. Mars 2013
Image
Fyrsta æfing sumarsins, hvetjum fólk endilega til að mæta sama hvort ætlunin sé að keyra eða ekki. Reynum að skapa frábæra stemningu fyrir sumarið!

Allar tegundir af bílum velkomnar, sama hvort þeir séu fram-, aftur- eða fjórhjóladrifnir.
Hvort sem fólk vill spóla eða æfa brautarakstur.
Brautin opnar kl. 18:00 og hættum við að keyra um kl. 22:00
Þau skilyrði sem bíll og ökumaður þurfa að uppfylla:
• Bíll með fulla skoðun.
• Gilt ökuskírteini.
• Löglegur hjálmur.
• Viðkomandi þarf að vera meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
• Nagladekk eru stranglega bönnuð.





******ATH*******
allir sem keyra verða að koma með afrit af sýnum tryggingaviðauka!
ekkert mál að fá hann fyrir allt sumarið.


Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram uppá braut, Vinsamlegast komið með seðla þar sem við verðum ekki klárir með posa á miðvikudaginn.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Það keyrir enginn án miða!

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
(síðan liggur niðri svo annað hvort millifæra eða borga á staðnum)
Árgjaldið er það sama og í fyrra 5000 kr.
Hægt að millifæra eða borga uppá braut, fyrsta æfing er frí! Ef þið millifærið munið að koma með kvittun!

Driftdeild AÍH
Bnknr. 322-26-25262
Kt. 450109-0880



Áhorfendur athugið:
Vinsamlegast leggið bílum ykkar hægramegin við brautina og gangið svo að áhorfendasvæði
Áhorfendum er einning frjálst að ganga niður í pitt
Vinsamlegast keyrið varlega á malarveginum uppá braut.


Brot á þessum og öllum reglum DDA varðar brottvísun af svæðinu!

Smá forsmekkur af fjörinu:


Image
Image
Image
Fyrir hönd DDA.

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Mon 25. Mar 2013 13:33
by siggigunni
Fyrir þá sem ekki vita hverning komast skal á leiðarenda.
Image

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Mon 25. Mar 2013 21:44
by Alpina
8) :thup: :thup:

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Mon 25. Mar 2013 21:53
by odinn88
hverjir hérna eru tilbúnir með bílana sína og ætla að mæta ?

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Mon 25. Mar 2013 22:49
by Alpina
odinn88 wrote:hverjir hérna eru tilbúnir með bílana sína og ætla að mæta ?


Ég verð í Koenigsegg,,,,,,,,,, 8)

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Tue 26. Mar 2013 00:41
by eiddz
Ég er ekki með bíl tilbúinn :(

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Tue 26. Mar 2013 01:16
by Runar335
ekki ég heldur en kem vonandi sterkur inn í næstu akstursæfingu :D

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Tue 26. Mar 2013 10:48
by lambi1
Við bjuggumst nú allveg við því að það væru ekki allir tilbúnir, en einhverjir eru tilbúnir og því er um að gera að byrja strax :)
Þeir sem eiga eftir að klára bílana sína hafa fram yfir páska, þá keyrum við þetta almennilega í gang. :)

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Tue 26. Mar 2013 17:58
by Runar335
lambi1 wrote:Við bjuggumst nú allveg við því að það væru ekki allir tilbúnir, en einhverjir eru tilbúnir og því er um að gera að byrja strax :)
Þeir sem eiga eftir að klára bílana sína hafa fram yfir páska, þá keyrum við þetta almennilega í gang. :)


:thup:

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Tue 26. Mar 2013 22:14
by Tóti
Ég mæti :thup:

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Tue 26. Mar 2013 22:25
by siggigunni
******ATH*******
allir sem keyra verða að koma með afrit af sýnum tryggingaviðauka!

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Wed 27. Mar 2013 01:07
by BMW_Owner
ég mæti bara til að vera kúl, ég drifta ekki á 750 þetta bílar nóg nú þegar. :lol:

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Wed 27. Mar 2013 09:54
by lambi1
siggigunni wrote:******ATH*******
allir sem keyra verða að koma með afrit af sýnum tryggingaviðauka!


Það eru ekki öll tryggingafélög með þetta. Þessvegna þarf fólk að hafa samband við tryggingafélögin sín.

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Wed 27. Mar 2013 19:43
by Angelic0-
Ohhh, ég var að klára afturdekkin...

Hefði klárlega sparað þau ef að ég hefði séð þessa auglýsingu fyrr... :roll:

Reyni að koma næst....

Re: Akstursæfing DDA Miðvikudaginn 27.Mars

PostPosted: Wed 27. Mar 2013 23:40
by eiddz
Góð mæting ?