bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Akstursæfing DDA 29. júní
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=57204
Page 1 of 1

Author:  RJR16 [ Tue 26. Jun 2012 23:58 ]
Post subject:  Akstursæfing DDA 29. júní

Akstursæfing DDA 29. júní 2012.


Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!

Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 18:00 og við hættum að keyra um kl. 22:00.

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
● Gilt ökuskírteini.
● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
● Löglegur hjálmur.
● Nagladekk stranglega bönnuð.

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram uppá braut, öruggast að mæta með seðla.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Það keyrir enginn án miða!


Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 5000 kr.

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendum er þó frjálst að koma gangandi niður í pitt.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með sólina og góða skapið.

F.h. DDA

Author:  rockstone [ Wed 27. Jun 2012 21:54 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA 29. júní

Mæti ef ég verð búinn að redda felgum og dekkjum til að leika mér á :thup:

Author:  Stefan325i [ Sat 30. Jun 2012 01:03 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA 29. júní

Þetta var ofsalega skemmtilegt, og veðrið alveg geggjað, takk fyrir mig.

Author:  rockstone [ Sat 30. Jun 2012 02:40 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA 29. júní

Skemmti mér konunglega, fyrsta driftæfingin mín, takk fyrir mig :thup:

Author:  Romeo [ Sat 30. Jun 2012 03:53 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA 29. júní

me2 þetta var geðveikt mæti klárlega næsta föstudag!

Author:  SteiniDJ [ Sat 30. Jun 2012 05:58 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA 29. júní

Kostar s.s 2000 kall fyrir meðlimi kraftsins?

Vilja menn þá ekki fylgjast með Z4 tracka? Eða má það kannski ekki fyrst hann er ekki með búr???

Author:  RJR16 [ Sat 30. Jun 2012 10:41 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA 29. júní

Vil þakka fyrir mjög góða mætingu, klárlega skemmtilegasta æfingin í sumar.

Author:  rockstone [ Sat 30. Jun 2012 13:01 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA 29. júní

SteiniDJ wrote:
Kostar s.s 2000 kall fyrir meðlimi kraftsins?

Vilja menn þá ekki fylgjast með Z4 tracka? Eða má það kannski ekki fyrst hann er ekki með búr???


Þú verður að vera í bílaklúbb semsagt t.d. BA, DDA osfrv. BMWkraftur dekkar þetta ekki, ekki aksturíþróttaklúbbur.

og blæjubílar verða að vera með búr.

Author:  SteiniDJ [ Sun 01. Jul 2012 14:18 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA 29. júní

Duga ekki veltibogarnir við sætin? Þjóna alveg sama tilgangi og eitthvað búr.

Author:  Jón Ragnar [ Sun 01. Jul 2012 17:40 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA 29. júní

SteiniDJ wrote:
Duga ekki veltibogarnir við sætin? Þjóna alveg sama tilgangi og eitthvað búr.



Jú, En toppurinn þarf að vera uppi bara :)

Author:  SteiniDJ [ Thu 05. Jul 2012 04:01 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA 29. júní

Jón Ragnar wrote:
SteiniDJ wrote:
Duga ekki veltibogarnir við sætin? Þjóna alveg sama tilgangi og eitthvað búr.



Jú, En toppurinn þarf að vera uppi bara :)


Svít. :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/