bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 27. Apr 2024 10:16

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 
Author Message
PostPosted: Wed 20. Jun 2012 18:29 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sun 16. Jan 2005 02:25
Posts: 204
Location: Einhversstaðar á milli himnaríkis og helvítis
Image

Akstursæfing DDA 22. júní '12.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!


Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 18:00 og við hættum að keyra í síðasta lagi kl. 22:00.

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:
    ● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
    ● Gilt ökuskírteini. ATH! Þið þurfið að sýna ökuskirteini á staðnum.
    ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
    ● Löglegur hjálmur.
    ● Nagladekk stranglega bönnuð.
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum. Við tökum við greiðslum upp á braut, posi á staðnum.

[insert strækþrú effekt] Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php [end strækþrú effekt]
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 5000 kr.
Vefsíðan liggur niðri, svo ef fólk vill skrá sig í félagið, þá verður það að gera það upp á braut. Þar sem posinn á staðnum verður fyrir brautargjaldið sem rennur til AÍH, þá verður að borga DDA skráninguna CASH ONLY PEEPZ. :|

Semsagt:
1. Þú ert ný(r).
2a. Þú ert nýkomin(n) með bílpróf.
2b. Þú uppgötvar að þú hefur gaman að því að keyra hratt.
3. Þú ferð í hraðbankann.
4. Þú tekur út 5000 kr. í reiðu fé.
5. Þú ekur upp á braut til okkar á föstudagskvöldið.
6. Þú greiðir okkur þessar 5000 kr. og ert þar með gengin(n) í DDA.
7. Þú greiðir starfsmanni AÍH 1000 kr. með pening eða korti.
8. Þú setur hjálm á hausinn.
9. Þú spennir beltið.
10.-99. Þú reykspólar inn í nóttina.

Muna svo:
Það kostar ekkert að koma og fylgjast með.
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendur eru þó hvattir til að koma gangandi niður í pitt.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með sólina og góða skapið.

F.h. DDA.

_________________
Anton

1992 BMW E36 318IS Coupe og...
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group