Page 1 of 2

Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Tue 29. May 2012 09:00
by Jón Ragnar
Image




Fyrsta DDA driftkeppni sumarsins verður núna á laugardaginn, 2. Júní. Svæðið opnar fyrir áhorfendur klukkan 18:00 og keppni hefst 1900. Aðgangsgjald er 500 kr. fyrir áhorfendur eldri en 12 ára (frítt fyrir yngri en 12 ára).
Ástæðan fyrir að þetta er svona seint er að GoKart er með keppni fyrr um daginn og hvetjum alla til að kíkja á það líka

Dagskrá:
15:00 Svæði gefið út / æfingar fyrir keppendur hefjast
18:00 Æfingum lýkur
18:00 Kvöldmatur / svæði opnar fyrir áhorfendur
19:00 Undankeppni hefst
21:00 Úrslitakeppni hefst (8 manna útsláttarkeppni)
22:00 Verðlaunaafhending

Keppendur skoðið þennan þráð.

F.h. DDA

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Tue 29. May 2012 15:49
by BjarkiHS
Sem fjölskyldumaður verð ég að segja að tímasetningin er frekar óheppileg. (sjómannadagshelgin)

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Tue 29. May 2012 15:53
by Jón Ragnar
BjarkiHS wrote:Sem fjölskyldumaður verð ég að segja að tímasetningin er frekar óheppileg. (sjómannadagshelgin)



Ekki hægt að gera öllum til geðs

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Tue 29. May 2012 17:38
by lambi1
ég elska þegar það er hádegishlé klukkan 18:00 :lol:

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Tue 29. May 2012 17:39
by tinni77
lambi1 wrote:ég elska þegar það er hádegishlé klukkan 18:00 :lol:


hahahaha

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Tue 29. May 2012 17:48
by Jón Ragnar
Meira gagnið í ykkur :thdown:

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Tue 29. May 2012 18:14
by Axel Jóhann
Sé mér ekki fært að mæta. :(

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Tue 29. May 2012 20:10
by T-bone
að hafa þetta þessa helgi er endalaust fail.

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Tue 29. May 2012 20:19
by Jón Ragnar
T-bone wrote:að hafa þetta þessa helgi er endalaust fail.



Ég get alveg fært þetta fyrir þig, ekkert mál :thup:

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Tue 29. May 2012 23:07
by BjarkiHS
Jón Ragnar wrote:
BjarkiHS wrote:Sem fjölskyldumaður verð ég að segja að tímasetningin er frekar óheppileg. (sjómannadagshelgin)



Ekki hægt að gera öllum til geðs


Ekki eru allir áhugamenn/keppendur einhleypir og barnlausir.
Ég veit að þú velur ekki dagsetningar, en ég get ekki annað en pirrað mig á svona klúðri.

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Thu 31. May 2012 19:33
by rufuz
Eftirfarandi eru skráðir í keppni á laugardaginn:

Bragi Þór á BMW
Einar Gústaf á BMW
Ríkarður Jón á Pontiac
Þorkell Máni á Nissan
Þórir Örn á BMW

Vantar þrjá í viðbót til þess að hægt sé að halda keppni. :win:

Þónokkuð er af mönnum sem skráðu sig og borguðu síðast en hafa ekki skráð sig aftur fyrir keppnina á laugardaginn. Ég vil endilega biðja menn um að skrá sig sem ætla að keppa. Þeir sem komast/ætla ekki, vinsamlegast sendið okkur póst á driftdeild (att) gmail (punktur) com svo við getum endurgreitt ykkur keppnisgjöldin.

Hlakka til að spóka mig í kvöldsólinni upp á braut á laugardaginn! :mrgreen:

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Fri 01. Jun 2012 10:42
by lambi1
rufuz wrote:Eftirfarandi eru skráðir í keppni á laugardaginn:

Bragi Þór á BMW
Einar Gústaf á BMW
Ríkarður Jón á Pontiac
Þorkell Máni á Nissan
Þórir Örn á BMW
birgir sigurðsson á BMW
Haukur gíslason á BMW
Vantar einn í viðbót til þess að hægt sé að halda keppni. :win:


Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Fri 01. Jun 2012 14:58
by rufuz
lambi1 wrote:birgir sigurðsson á BMW
Haukur gíslason á BMW
Vantar einn í viðbót til þess að hægt sé að halda keppni. :win:


:thup:
Koma svo, einn í viðbót!

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Fri 01. Jun 2012 16:17
by eiddz
Var að skrá mig, vona að það sé ekki of seint :mrgreen:

Re: Fyrsta Driftkeppni Sumarsins! Retake

PostPosted: Fri 01. Jun 2012 16:20
by Jón Ragnar
Sleppur!

Og við erum með keppni! :thup: