bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Akstursæfing DDA 25. maí
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=56685
Page 1 of 1

Author:  RJR16 [ Mon 21. May 2012 21:22 ]
Post subject:  Akstursæfing DDA 25. maí

Akstursæfing DDA 25. maí 2012.


Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!

Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 18:00 og við hættum að keyra um kl. 22:00.

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
● Gilt ökuskírteini.
● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
● Löglegur hjálmur.
● Nagladekk stranglega bönnuð.

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram uppá braut, öruggast að mæta með seðla.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Það keyrir enginn án miða!


Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 5000 kr.

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendum er þó frjálst að koma gangandi niður í pitt.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með sólina og góða skapið.

F.h. DDA.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/