Page 1 of 1

Snjóakstursæfing sunnudaginn 11 des

PostPosted: Wed 07. Dec 2011 21:05
by tinni77
Snjóakstursæfing DDA 11. desember '11.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!


*Mynd frá Árna Fannari
Image


Brautin opnar kl. 13:00 og við hættum að keyra um kl. 18:00, þá er bara orðið dimmt og kalt.

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:
● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
● Gilt ökuskírteini.
● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
● Löglegur hjálmur.
● Nagladekk stranglega bönnuð.
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu.


Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargötu í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.
Það keyrir enginn án miða!



Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið.

Spurningar?

F.h. DDA.

Tinni.

Re: Snjóakstursæfing sunnudaginn 11 des

PostPosted: Wed 07. Dec 2011 21:17
by Omar_ingi
Má vera með nagladekk að framan á E36? :)

Re: Snjóakstursæfing sunnudaginn 11 des

PostPosted: Wed 07. Dec 2011 22:08
by rockstone
Omar_ingi wrote:Má vera með nagladekk að framan á E36? :)


nope, engin nagladekk leyfð, þetta er til að verja malbikið ;)

Re: Snjóakstursæfing sunnudaginn 11 des

PostPosted: Wed 07. Dec 2011 23:27
by Omar_ingi
rockstone wrote:
Omar_ingi wrote:Má vera með nagladekk að framan á E36? :)


nope, engin nagladekk leyfð, þetta er til að verja malbikið ;)

Ég skil

Re: Snjóakstursæfing sunnudaginn 11 des

PostPosted: Thu 08. Dec 2011 00:21
by gunnar
úú er að spá í að mæta á Jimny og spóla aðeins.

Re: Snjóakstursæfing sunnudaginn 11 des

PostPosted: Thu 08. Dec 2011 08:05
by agustingig
Djöfull eru ég og vollinn mættir! 8)

Re: Snjóakstursæfing sunnudaginn 11 des

PostPosted: Fri 09. Dec 2011 10:47
by Omar_ingi
Ein fáranleg spurning? :D DDA? Drift Deild Akureyrar?

Re: Snjóakstursæfing sunnudaginn 11 des

PostPosted: Fri 09. Dec 2011 10:53
by Jón Ragnar
Driftdeild Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar

Re: Snjóakstursæfing sunnudaginn 11 des

PostPosted: Sun 11. Dec 2011 19:06
by Benzari
Snilld.

Hverjir gleymdu þessu?

Re: Snjóakstursæfing sunnudaginn 11 des

PostPosted: Mon 12. Dec 2011 01:34
by T-bone
Tók nokkrar myndir. Henti þeim inn á facebook. Hendi inn link hérna því ég nennti ekki að hýsa þær á photobucket.

http://www.facebook.com/media/set/?set= ... 974&type=3