Page 1 of 1

Akstursæfing DDA 11. sept

PostPosted: Sat 10. Sep 2011 15:17
by rufuz
Image

Akstursæfing DDA 11. september '11.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!



Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 14:00 og við hættum að keyra kl. 18:00.

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:
    ● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
    ● Gilt ökuskírteini.
    ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
    ● Löglegur hjálmur.
    ● Nagladekk stranglega bönnuð.
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.
Það keyrir enginn án miða!
(nema þeir sem eru að skrá sig í félagið og hafa ekki keyrt ennþá, þeir mæta með kvittun og fá að keyra frítt)

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr.

Meðlimakortin eru komin. Menn geta nálgast þau á æfingum.
(Ath. þó, það virðist hafa gleymst að gera fyrir þónokkra meðlimi. Því verður reddað vonandi fljótlega.)

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendum er þó frjálst að koma gangandi niður í pitt.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með sólina og góða skapið.

F.h. DDA.

Re: Akstursæfing DDA 11. sept

PostPosted: Sun 11. Sep 2011 13:57
by gunnar
Þetta var nú ekki rosalega mikill fyrirvari... :?

Re: Akstursæfing DDA 11. sept

PostPosted: Sun 11. Sep 2011 22:05
by rufuz
gunnar wrote:Þetta var nú ekki rosalega mikill fyrirvari... :?


Nei við gerðum okkur grein fyrir því. Það var bara ekkert annað í stöðunni, þar sem að við fengum ekki staðfest að brautin væri laus fyrr en í gær og einnig að brautin verður ekki laus í næstu viku.

Best væri að fólk yrði "fans" af Driftdeildinni á Facebook, þá fær það tilkynningar um svona hluti um leið og við setjum það inn.

https://www.facebook.com/pages/Driftdeild-A%C3%8DH/132760793429351

Það verður ein æfing í viðbót áður en við hættum fyrir veturinn og sú æfing verður auglýst með góðum fyrirvara.

Re: Akstursæfing DDA 11. sept

PostPosted: Mon 12. Sep 2011 00:40
by agustingig
rufuz wrote:
gunnar wrote:Þetta var nú ekki rosalega mikill fyrirvari... :?


Nei við gerðum okkur grein fyrir því. Það var bara ekkert annað í stöðunni, þar sem að við fengum ekki staðfest að brautin væri laus fyrr en í gær og einnig að brautin verður ekki laus í næstu viku.

Best væri að fólk yrði "fans" af Driftdeildinni á Facebook, þá fær það tilkynningar um svona hluti um leið og við setjum það inn.

https://www.facebook.com/pages/Driftdeild-A%C3%8DH/132760793429351

Það verður ein æfing í viðbót áður en við hættum fyrir veturinn og sú æfing verður auglýst með góðum fyrirvara.


Verður engin snjó æfing ef það kemur nú snjor einhverntímann í vetur?

Re: Akstursæfing DDA 11. sept

PostPosted: Mon 12. Sep 2011 07:10
by Aron Andrew
Jú stefnum á að hafa snjódag þegar/ef hann lætur sjá sig :)

Re: Akstursæfing DDA 11. sept

PostPosted: Mon 12. Sep 2011 07:58
by Axel Jóhann
Aka, korando og volvo dag. :alien:

Re: Akstursæfing DDA 11. sept

PostPosted: Mon 12. Sep 2011 07:59
by Einarsss
Axel Jóhann wrote:Aka, korando og volvo dag. :alien:


og cherokee! :mrgreen:

Re: Akstursæfing DDA 11. sept

PostPosted: Mon 12. Sep 2011 21:12
by Aron Andrew
Einarsss wrote:
Axel Jóhann wrote:Aka, korando og volvo dag. :alien:


og cherokee! :mrgreen:


Og iX! 8)

Re: Akstursæfing DDA 11. sept

PostPosted: Sun 09. Oct 2011 16:57
by Bartek
520i
:thup: