Page 1 of 1

Driftkeppni DDA 13. ágúst 2011

PostPosted: Wed 10. Aug 2011 19:46
by rufuz
Image

Síðasta DDA driftkeppni sumarsins verður núna á laugardaginn, 13. ágúst. Svæðið opnar fyrir áhorfendur klukkan 12:00 og keppni hefst 13:00. Aðgangsgjald er 500 kr. fyrir áhorfendur eldri en 12 ára (frítt fyrir yngri en 12 ára).

Dagskrá:
09:00 Svæði gefið út / æfingar fyrir keppendur hefjast
11:59:59 Æfingum lýkur
12:00 Hádegishlé / svæði opnar fyrir áhorfendur
13:00 Undankeppni hefst
14:00 Úrslitakeppni hefst (8 manna útsláttarkeppni)
16:00 Verðlaunaafhending

Keppendur skoðið þennan þráð.

F.h. DDA

Re: Driftkeppni DDA 13. ágúst 2011

PostPosted: Wed 10. Aug 2011 23:27
by MR.BOOM
Hefði mátt byrja kl 14 útaf Rally Reykjavík......reyna að mæta... bara seint

Re: Driftkeppni DDA 13. ágúst 2011

PostPosted: Fri 12. Aug 2011 23:00
by MR.BOOM
Hvað eru margir skráðir og hverjir :?:

Re: Driftkeppni DDA 13. ágúst 2011

PostPosted: Sat 13. Aug 2011 00:10
by Axel Jóhann
10 skráðir held ég :)

Re: Driftkeppni DDA 13. ágúst 2011

PostPosted: Sat 13. Aug 2011 00:32
by rufuz
Axel Jóhann wrote:10 skráðir held ég :)


Rétt. Það gætu orðið talsverðar tilfæringar í efstu sætunum, þar sem Alex, sem í augnablikinu er í 2. sæti, hefur ekki skráð sig. Aron, Siggi og Júlli hafa allir tækifæri á því að príla upp.

Re: Driftkeppni DDA 13. ágúst 2011

PostPosted: Sat 13. Aug 2011 02:58
by Alex GST
ég er out :)

Re: Driftkeppni DDA 13. ágúst 2011

PostPosted: Sat 13. Aug 2011 20:58
by Axel Jóhann

Re: Driftkeppni DDA 13. ágúst 2011

PostPosted: Sat 13. Aug 2011 21:20
by aronjarl
1. Siggi 300zx
2. Aron Jarl e30 328i turbo
3. Júlli Compact 325i

Re: Driftkeppni DDA 13. ágúst 2011

PostPosted: Mon 15. Aug 2011 16:12
by rufuz
aronjarl wrote:1. Siggi 300zx
2. Aron Jarl e30 328i turbo
3. Júlli Compact 325i


4. Haukur Gíslason | Nissan 200SX
5. Adam Örn Þorvaldsson | BMW 540 Touring
6. Einar Gústaf Sverrisson | BMW Þrír-tuttugu-og-emm-þrír
7. Þórir Örn Eyjólfsson | Bartek 7-series
8. Ríkarður Jón Ragnarsson | Pontiac Firebird Formula
9. Guðmundur Ingi Bjarnason | Ford Mustang

Eftir þessa baráttu, þá heldur Adam ennþá sínu sæti og er því Íslandsmeistari 2011. Til hamingju með það Adam!
Aron Jarl og Siggi Sör eru jafnir á stigum þar á eftir og þar sem að þeir hafa báðir unnið tvær keppnir og báðir tapað fyrir hvorum öðrum einu sinni, þá er ég ekki viss hvernig það fer. Aron er með reglurnar varðandi þetta á hreinu, svo hann getur örugglega sagt okkur hvernig þetta fer.