bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Akstursæfing DDA 5. ágúst '11 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=52297 |
Page 1 of 1 |
Author: | rufuz [ Wed 03. Aug 2011 21:10 ] |
Post subject: | Akstursæfing DDA 5. ágúst '11 |
Akstursæfing DDA 5. ágúst '11. Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn! Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip! *Mynd frá Sæma Boom Brautin opnar kl. 19:00 og við hættum að keyra kl. 22:00. Í sumar er planið að opna og loka á mínútunni, svo það þýðir ekkert að mæta rétt fyrir 22:00! Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega. Það sem þarf til að fá að keyra er:
● Gilt ökuskírteini. ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ. ● Löglegur hjálmur. ● Nagladekk stranglega bönnuð. Farþegar eru leyfðir. Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið. Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ. Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum. Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina. Það keyrir enginn án miða! (nema þeir sem eru að skrá sig í félagið og hafa ekki keyrt ennþá, þeir mæta með kvittun og fá að keyra frítt) Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig: http://www.drift.is/skraningifelagid.php ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr. Meðlimakortin eru komin. Menn geta nálgast þau á æfingum. (Ath. þó, það virðist hafa gleymst að gera fyrir nokkra meðlimi. Því verður reddað fljótlega.) Muna svo: Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendum er þó frjálst að koma gangandi niður í pitt. Keyra varlega á malarveginum upp að braut. Koma með sólina og góða skapið. F.h. DDA. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |