bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Akstursæfing DDA 22. júlí '11 (Drift/Grip)
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=52111
Page 1 of 1

Author:  rufuz [ Thu 21. Jul 2011 13:45 ]
Post subject:  Akstursæfing DDA 22. júlí '11 (Drift/Grip)

Image

Akstursæfing DDA 22. júlí '11.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!



Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 19:00 og við hættum að keyra kl. 22:00. Í sumar er planið að opna og loka á mínútunni, svo það þýðir ekkert að mæta rétt fyrir 22:00!

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:
    ● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
    ● Gilt ökuskírteini.
    ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
    ● Löglegur hjálmur.
    ● Nagladekk stranglega bönnuð.
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.
Það keyrir enginn án miða!
(nema þeir sem eru að skrá sig í félagið og hafa ekki keyrt ennþá, þeir mæta með kvittun og fá að keyra frítt)

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr.

Meðlimakortin eru komin. Menn geta nálgast þau á æfingum.
(Ath. þó, það virðist hafa gleymst að gera fyrir nokkra meðlimi. Því verður reddað fljótlega.)

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið.

Auglýsingin er degi of seint á ferðinni. Sorry.

F.h. DDA.

Author:  gunnar [ Thu 21. Jul 2011 14:30 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA 22. júlí '11 (Drift/Grip)

Yeah,

Ætla að mæta og fræsa smá

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/