Driftæfing DDA 15.7.2011

Hér skal ræða um allt efni tengt mótorsporti. Ef þú þarft að auglýsa leikdag, æfingu, keppni eða eitthvað slíkt gerðu það þá hér.

Driftæfing DDA 15.7.2011

Postby Jón Ragnar » Fri 15. Jul 2011 14:45

Image

Akstursæfing DDA 15. júlí '11.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!



Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 19:00 og við hættum að keyra kl. 22:00, þá er bara orðið dimmt og kalt. Í sumar er planið að opna og loka á mínútunni, svo það þýðir ekkert að mæta rétt fyrir 22:00!

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:
    ● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
    ● Gilt ökuskírteini.
    ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
    ● Löglegur hjálmur.
    ● Nagladekk stranglega bönnuð.
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.
Það keyrir enginn án miða!
(nema þeir sem eru að skrá sig í félagið og hafa ekki keyrt ennþá, þeir mæta með kvittun og fá að keyra frítt)

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr.

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið.

Spurningar?

F.h. DDA.

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Driftæfing DDA 15.7.2011

Postby Jón Ragnar » Fri 15. Jul 2011 14:45

Steingleymdum að auglýsa :$

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1


Return to Mótorsport

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 2 guests