Page 1 of 2

Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Thu 07. Jul 2011 00:21
by Axel Jóhann
Image

Akstursæfing DDA 8. júlí '11.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!



Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 19:00 og við hættum að keyra kl. 22:00, þá er bara orðið dimmt og kalt. Í sumar er planið að opna og loka á mínútunni, svo það þýðir ekkert að mæta rétt fyrir 22:00!

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:
    ● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
    ● Gilt ökuskírteini.
    ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
    ● Löglegur hjálmur.
    ● Nagladekk stranglega bönnuð.
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.
Það keyrir enginn án miða!
(nema þeir sem eru að skrá sig í félagið og hafa ekki keyrt ennþá, þeir mæta með kvittun og fá að keyra frítt)

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr.

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið.

Spurningar?

F.h. DDA.

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Thu 07. Jul 2011 11:06
by agustingig
8)

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Thu 07. Jul 2011 23:19
by EvH
:thup:

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Thu 07. Jul 2011 23:21
by SteiniDJ
Ég ætla að mæta og mynda þetta í döðlur!

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Thu 07. Jul 2011 23:46
by MR.BOOM
DJ photo.......ætlar þú að vera eins og hin wb og mynda þetta í döðlur ........síðan setja inn eina mynd eða fara beint í guðatölu og vera gaurinn sem tekur við af mér :mrgreen:

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 08. Jul 2011 00:06
by Axel Jóhann
MR.BOOM wrote:DJ photo.......ætlar þú að vera eins og hin wb og mynda þetta í döðlur ........síðan setja inn eina mynd eða fara beint í guðatölu og vera gaurinn sem tekur við af mér :mrgreen:




Sæmi, þú lætur nú sjá þig er það ekki? :)

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 08. Jul 2011 00:24
by Emil Örn
Aldrei að vita nema maður droppi við...

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 08. Jul 2011 00:30
by SteiniDJ
MR.BOOM wrote:DJ photo.......ætlar þú að vera eins og hin wb og mynda þetta í döðlur ........síðan setja inn eina mynd eða fara beint í guðatölu og vera gaurinn sem tekur við af mér :mrgreen:


Nei, ég ætla bara að hafa gaman af þessu. Þetta var bara svo sweet ass font sem ég fann að þetta nafn varð eiginlega bara að gerast. :lol:

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 08. Jul 2011 00:38
by MR.BOOM
Ertu að segja ég hafi ekki gaman af þessu............

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 08. Jul 2011 00:41
by SteiniDJ
MR.BOOM wrote:Ertu að segja ég hafi ekki gaman af þessu............


Hey, þú gengur undir nafninu "bitri gaurinn"! :lol: En jú, mig grunar það að þú hafir gaman af þessu. Annars værirðu sennilegast ekki að leggja jafn mikinn metnað í að mæta og mynda svona oft.

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Sat 09. Jul 2011 03:47
by SteiniDJ
Lofuð myndataka heppnaðist sæmilega. Sumar myndir voru nokkuð góðar, en fæstar mikið meir en það. Er ennþá að læra á vélina og þetta kemur með tímanum. Ætla samt að deila því sem ég skaut með ykkur!

Image

Image

Image

Image

Þessi er svo fallegur að hann varð eiginlega að fá að fljóta með...

Image

Image

Image

Image

Image

Axel gerði margt annað en að drifta þetta kvöld.

Image

Hann tók m.a. pós ofan á hátalara.

Image

Og kveikti loks í bílnum sínum.

Image

Image

Image

Sumir voru ennþá í gírnum seinna um kvöldið og hélt fjörið þá eitthvað smá áfram.

En eins og ég segi, þá eru þessi action shots aðeins að vefjast fyrir mér. Hef ekki verið heppinn með skot, en hef trú á því að ég nái að bæta mig á næstunni. :)

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Sun 10. Jul 2011 16:37
by Eyzi
Image
Image
Image
Ég vill bara þakka fyrir mig þetta var frábært kvöld :D

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Sun 10. Jul 2011 17:43
by srr
E28 518i að drifta.

Win win :lol:

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Sun 10. Jul 2011 17:56
by Axel Jóhann
ehhhh e28 528i :mrgreen:

Re: Akstursæfing DDA 8. Júlí '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Sun 10. Jul 2011 18:15
by tinni77
Ég segi frekar E38 að drifta = winwin :lol: