bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 27. Apr 2024 10:49

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 17 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Tue 28. Jun 2011 22:33 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 05. Jun 2006 23:36
Posts: 523
Location: Rvk
KING OF THE STREET 2011

Verður haldinn laugardaginn 9 júlí á kvartmílubrautinni


Keppnislýsing:

Þetta er keppni fyrir götubíla. Leyfilegt eldsneyti er eingöngu það sem selt er á bensínstöðvum til almennings. Það verður fylgst með því að menn séu að nota löglegt eldsneyti.Öll íblöndunarefni svo sem oktan booster ofl. bönnuð.

Allir flokkar eru keyrðir á PRO TREE (öll gulu ljósin kvikna samtímis) og ræst á jöfnu.

Tæki skulu standast bifreiðaskoðun á staðnum,frávik eru leyfð á hávaða frá pústi,hvarfakútum,viðvörunarþríhyrningur og keppnisdempurum að öðru leiti skal standast fulla skoðun,púst skal ná út fyrir yfirbyggingu samkvæmt skoðunarhandbók, neyðarhemill , rúðuþurkur, annað sem er krafist í skoðunarhandbók verður að vera til staðar og standast skoðun.

Dekkjabúnaður bíla verður að vera DOT eða E merktur.

Hoosier Q.T.P og M/T ET Street og sambærileg, hámarkstærð 28X12.50

Hoosier og M/T og sambærileg Drag Radial, hámarkstærð P325/50 (28 X 13.50)

(dekkjatakmarkanir gilda ekki í jeppaflokki)


Keppt verður í sex flokkum á bílum og fjórum flokkum á mótórhjólum.

Bílaflokkar.

Bílar með drifi á einum öxli keppa í 5 flokkum:
4 sílendra
6 sílendra
8+ sílendra eingöngu radíal dekk
8+ sílendra yngra en 1985
8+ sílendra eldra en 1985

Fjórhóladrifnir fólksbílar keppa í einum flokk:
4x4 flokkur

Jeppar og pallbílar keppa í einum flokk:
Jeppaflokkur

Mótorhjól:

Racerar
799cc og minni
800cc og stærri

Hippar
999cc og minni
1000cc og stærri

Einnig verða neðangreindir flokkar keyrðir, en þeir gilda ekki til titilsins King of the street.


Outlaw street - keyrður 1/4 mílu ,þessi flokkur er ætlaður þeim sem bílum sem eru á númerum en standast ekki bifreiðaskoðun/flokkaskoðun á staðnum vegna t.d slikka,ófullnægjandi pústkerfis o.s.f.v og keppa um titilinn OUTLAW KING OF THE STREET.

Limited Street- keyrður 1/4 og er hefðbundin bikarkeppni.
http://kvartmila.is/is/sidur/ls-flokkur


Opinn flokkur
- keyrður 1/8 og er hefðbundin bikarkeppni.
Allt leyft,ætlaður dragsterum og bílum sem ekki eru á númerum.

Til að taka þátt þarftu að hafa:

Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur Akstursíþróttarklúbb innan ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda

Skráningarfrestur.


Formlegri Skráningu lýkur Miðvikudaginn 6 júlí.
Hægt verður að skrá sig til 6:00 laugardaginn 9 júlí en þá bætist við 2500 kr aukagjald
Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum en þá bætist við 5000Kr auka gjald

Keppnisgjöld:

Keppnisgjald verður 5000kr og það er hægt að greiða það á 2 vegu
Annarsvegar kaupa keppnisgjaldið í gegnum vefverslunina okkar eða leggja inn á klúbbinn.
Vefverslun - http://kvartmila.is/is/vorur
Reikningsnúmerið er:#1101-26-111199 Kennitala:660990-1199

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið:

jonbjarni@kvartmila.is

Nafn
Kennitala
Aksturíþróttarfélag
Keppnistæki
Vélarstærð
Skipting
Aflauki
Bílnúmer
Flokkur
GSM

Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á kvartmíluspjallinu.

Dagskrá:

9:30 - 11:00 Mæting Keppanda
11:00 Pittur lokar
11:15 Fundur með keppendum
10:00 - 11:55 Æfingarferðir
11:55 Tímatökur hefjast
13:20 Tímatökum lýkur
13:20 - 13:45 Hádegishlé
13:45 Keppendur Mættir við sín tæki
14:00 Keppni Hefst
16:25 Keppni lýkur - Kærufrestur Hefst
16:55 Kærufrestur liðinn
17:00 Verðlaunaafhenting á pallinum

Nánari upplýsingar

Skrifa í þráðinn.
Senda mér PM
eða hringja í 8473217

Jón Bjarni

_________________
Jón Bjarni
BMW 530D E-39 2002 MR.X :twisted:


Last edited by Jón Bjarni on Thu 07. Jul 2011 13:34, edited 2 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 03. Jul 2011 22:48 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 05. Jun 2006 23:36
Posts: 523
Location: Rvk
Vegna fjölda áskoranna var ákveðið að bæta við einum flokk í KOTS

8+ sílendra eingöngu radíal dekk.

í þessum flokk verða öll soft compound dekk bönnuð!

_________________
Jón Bjarni
BMW 530D E-39 2002 MR.X :twisted:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 03. Jul 2011 23:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Yesss... besta keppni EVER sem KK hefur haldið :thup:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 04. Jul 2011 00:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Posts: 2822
Location: 112 RVK, E30 city
Besta Útihátíðin er á sama tíma, svo maður mun ekki láta sjá sig :thdown:

_________________
BMW E30 325i Coupe
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 04. Jul 2011 00:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Jón Bjarni..

hefur 12 cyl flokkur aldrei verið inn í myndinni ??

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 04. Jul 2011 00:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15939
Location: Reykjavík
Alpina wrote:
Jón Bjarni..

hefur 12 cyl flokkur aldrei verið inn í myndinni ??


Já eða 12 cyl flokkur fyrir svarta bíla með gul framljós.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 04. Jul 2011 00:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Posts: 2822
Location: 112 RVK, E30 city
Alpina wrote:
Jón Bjarni..

hefur 12 cyl flokkur aldrei verið inn í myndinni ??


Það hefur aldrei verið nein skráning af 12 cyl, svo nee hehe ;)

_________________
BMW E30 325i Coupe
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 04. Jul 2011 00:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
bimmer wrote:
Alpina wrote:
Jón Bjarni..

hefur 12 cyl flokkur aldrei verið inn í myndinni ??


Já eða 12 cyl flokkur fyrir svarta bíla með gul framljós.


HALLO ,,,,,,,,,,,,,, :slap: :evil:

Það er hellingur af 12 cyl bílum á götum landsins ,,þó að þetta séu ekki algengustu 1/4 mílu þátttakendurnir :biggrin:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 04. Jul 2011 00:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Posts: 2822
Location: 112 RVK, E30 city
Þú getur hringt í Hjalta og spurt hann í flokk með þér, hann er eflaust til

:mrgreen:

_________________
BMW E30 325i Coupe
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 04. Jul 2011 00:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
tinni77 wrote:
Þú getur hringt í Hjalta og spurt hann í flokk með þér, hann er eflaust til

:mrgreen:


Það voru 2 keppendur í jeppaflokknum í fyrra :arrow:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 04. Jul 2011 01:03 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Posts: 2822
Location: 112 RVK, E30 city
8969652

gogogo

_________________
BMW E30 325i Coupe
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 04. Jul 2011 01:14 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 05. Jun 2006 23:36
Posts: 523
Location: Rvk
Tinni: þessi keppni var sett á dagatal töluvert langt á unda þessari útihátíð... þannig við verðum bara að vera í samkeppni við hana :)

Sveinbjörn: nei, enda hefur ekki verið nein skráning á slíkum tækjum.. við setjum allt með 8 sílendra og upp úr í sama flokk....

_________________
Jón Bjarni
BMW 530D E-39 2002 MR.X :twisted:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. Jul 2011 19:29 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 05. Jun 2006 23:36
Posts: 523
Location: Rvk
Vegna nokkurra fyrirspurna ætlum við að opna fyrir að það sé hægt að skrá sig í LS http://kvartmila.is/is/sidur/ls-flokkur , Hann yrði þá keyrður sem bikarmót.

KV
Jón Bjarni

_________________
Jón Bjarni
BMW 530D E-39 2002 MR.X :twisted:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 05. Jul 2011 22:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Bílar með mótora 600cid og yfir skulu vera 1550kg (3417lbs) að lágmarki með ökumanni.

Cabrio er í sömu þyngd m/driver og er 231 cid ......... :lol:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 06. Jul 2011 00:43 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 07. Apr 2010 23:55
Posts: 33
Alpina wrote:
Bílar með mótora 600cid og yfir skulu vera 1550kg (3417lbs) að lágmarki með ökumanni.

Cabrio er í sömu þyngd m/driver og er 231 cid ......... :lol:

Þetta þykir nokkuð þungur kvartmílubíll, það er mjög algengt að kvartmílubílar í usa séu um 3000-3300lbs :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 17 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 40 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group