Page 1 of 1

Kvartmíluæfing eftir keppni um helgina.

PostPosted: Fri 24. Jun 2011 00:54
by Friðrik Daníelsson
http://kvartmila.is/is/frett/2011/06/24 ... _helgina_!!

Test‘n tune (æfing) verður keyrð eftir Íslandsmeistaramótið um helgina, þar sem við erum öll orðin langeygð eftir æfingu og það eru ekki margir keppendur (styttri keppnistími) þá höfum við ákveðið að leyfa öllum sem vilja koma á laugardag og æfa sig eftir að keppni líkur.
Ef vel tekst til munum við gera þetta áfram á næstu keppnum og þetta er tækifæri til að koma og prufa við kjöraðstæður því á keppnisdögum er mikið lagt í að „preppa“ brautina upp á gripið.
Áætlað er að opna fyrir æfingu kl 15:00 og hafa opið til 17:00 fyrir keyrslu.Ef það er verulega góð mæting þá verður æfingartími lengdur.
Til að taka þátt í test‘n tune þarftu að hafa:

Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur Akstursíþróttarklúbb innan ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda!
Meðlimir Kvartmíluklúbbsins borga 1500kr til að taka þátt.
Meðlimir annara klúbba innan ÍSÍ borga 3000kr til að taka þátt.

Re: Kvartmíluæfing eftir keppni um helgina.

PostPosted: Fri 24. Jun 2011 12:21
by Emil Örn
Hvenær er keppnin sjálf?

Ég fann það hvergi á kvartmílusíðunni. :hmm:

Re: Kvartmíluæfing eftir keppni um helgina.

PostPosted: Fri 24. Jun 2011 21:06
by Friðrik Daníelsson
http://kvartmila.is/is/frett/2011/06/18 ... kraning_-- 8)

14:00 byrjar keppnin og ætti að vera búin um 15:00 því það eru svo fáir að keppa.

Re: Kvartmíluæfing eftir keppni um helgina.

PostPosted: Sat 25. Jun 2011 13:10
by Friðrik Daníelsson
Það fór allt á flot svo við frestum til sunnudags, mæting keppenda milli 10 og 11 og keppni flýtt um klukkutíma vegna möguleika á síðdegiskúrum.
KEPPNI BYRJAR 13:00