Page 1 of 1

Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Wed 22. Jun 2011 21:27
by Einarsss
Image

Akstursæfing DDA 24. júní '11.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!



Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 19:00 og við hættum að keyra kl. 22:00, þá er bara orðið dimmt og kalt. Í sumar er planið að opna og loka á mínútunni, svo það þýðir ekkert að mæta rétt fyrir 22:00!

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:
    ● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
    ● Gilt ökuskírteini.
    ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
    ● Löglegur hjálmur.
    ● Nagladekk stranglega bönnuð.
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.
Það keyrir enginn án miða!
(nema þeir sem eru að skrá sig í félagið og hafa ekki keyrt ennþá, þeir mæta með kvittun og fá að keyra frítt)

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr.

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið.

Spurningar?

F.h. DDA.

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Wed 22. Jun 2011 21:34
by bimmer
Einarsss wrote:ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr.

Spurningar?


Er verið að ögra SteinaDJ?

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Wed 22. Jun 2011 21:46
by Einarsss
bimmer wrote:
Einarsss wrote:ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr.

Spurningar?


Er verið að ögra SteinaDJ?


Haha.. höfum tekið þessa umræðu og það verður líklega nýliðadagur í sumar :D

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Thu 23. Jun 2011 00:30
by Josef
Hvenar fær maður félagaskírteinið frá DDA?

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Thu 23. Jun 2011 00:43
by Axel Jóhann
Já það væri ágætt, við lentum í mega veseni með skráninguna í götuspyrnuna. :thdown:

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Thu 23. Jun 2011 09:26
by gunnar
Agreed,

Löngu búinn að borga og ekki fengið neitt skírteini.

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Thu 23. Jun 2011 09:30
by Jón Ragnar
Erum að vinna í skírteinum :)

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 24. Jun 2011 12:22
by Emil Örn
Eru ekki örugglega einhverjir að fara að mæta?

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 24. Jun 2011 12:25
by Einarsss
vona það, eðal veður í boði

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 24. Jun 2011 12:47
by gunnar
Ég ætla að mæta,

Hvernig virkar þetta samt ef ég er búinn að borga í félagið en ekki búinn að fá skírteini, mæti ég bara uppeftir ?

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 24. Jun 2011 13:20
by Einarsss
gunnar wrote:Ég ætla að mæta,

Hvernig virkar þetta samt ef ég er búinn að borga í félagið en ekki búinn að fá skírteini, mæti ég bara uppeftir ?



já já, færð að keyra frítt í fyrsta skiptið :) Það er verið að vinna í skírteinis málum.

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 24. Jun 2011 13:23
by Emil Örn
Einarsss wrote:vona það, eðal veður í boði


Veðrið lofar allavega mjög góðu. Ég mæti og tek nokkrar myndir. Hef ekkert komist í neitt svona síðan um miðjan Maí. :argh:

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 24. Jun 2011 15:22
by rufuz
gunnar wrote:Ég ætla að mæta,

Hvernig virkar þetta samt ef ég er búinn að borga í félagið en ekki búinn að fá skírteini, mæti ég bara uppeftir ?


Mæta með kvittun fyrir millifærslunni

Re: Akstursæfing DDA 24. júní '11 (Drift/Grip)

PostPosted: Fri 24. Jun 2011 15:31
by gunnar
Ok geri það,

Ekki hægt að segja annað samt en að þetta sé smá bras í kringum skráningarnar.

Eruð þið ekki með skráða meðlimi með ykkur upp á braut þegar æfingar/keppnir eru ?

Flott að heyra að skirteinin séu á leiðinni, alveg að koma júlí :lol: :thup: :thup: