Alpina wrote:
-Siggi- wrote:
Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að þessi keppni eigi ekki að gilda til íslandsmeistara.
Það hefur bara sýnt sig þessir norðan menn hafa ekki áhuga/getu til að halda drift keppni.
Eins og maður hefur heyrt þá eru ALLFLESTIR sammála þessu
Þið eruð ótrúlegir. Talandi um áhuga og getu.
Hvar hafði þið séð viðlíka framkvæmdir við akstursíþróttasvæði á landinu, sem kemur drifturum sér í lagi til góða.
Þarna verður opið plan til æfinga þegar líður á sumarið. Þið voruð margir alveg til í að nota það kvöldið/nóttina fyrir keppni. Og það var bara gaman. Auðvitað.
Keppnisstjórnun/brautalagningu/dómgæslu höfum við alltaf, þessi 5 eða 7 ár eða hvað það nú er, sótt suður,
Hallór og Porsche gengið hafa séð um það. Menn geta auðvitað haft skoðanir á þeim félögum, en þetta voru nú frumkvöðlarnir í driftinu.
Og hafði þið oft driftað framanvið fullar stúkur af fólki...?
Reyndar fannst mér brautalagningin ekkert sérstök, en ég sá ekki keppnina, nema með bakinu (mannfjöldastjórnun).
Þetta á bara eftir að batna. Þessi áfangi svæðisins er á fullu í lokafrágangi, og verður malbik rúmlega tvöfaldað á næstu dögum.
Ég sé fyrir mér að næstu ísl. meistarar í drifti verði norðanmenn, menn geta æft linnulaust hérna án afskipta annarra.
Í alvöru, við ætlum að hafa gaman af þessu.
Ég veit hreinlega ekki með marga ykkar.