Page 1 of 1

DDA vantar dómara og starfsfólk

PostPosted: Thu 05. May 2011 20:18
by rufuz
DDA vantar tvo dómara, einn aðal og einn vara, til að dæma á driftkeppnum í sumar. Ekki væri verra ef aðilarnir væru búnir að stunda þetta sport eða eitthvað annað mótorsport, en það er ekki nauðsyn. Eina sem við förum fram á er að aðilarnir séu með brennandi áhuga á drifti, góða athyglisgáfu, sanngjarnir og kurteisir að eðlisfari en samt óhræddir við að svara fyrir sig. :)

Einnig vantar okkur starfsfólk í að manna sópa o.fl.

Áhugasamir hafi samband við eitthvert okkar í stjórninni. Þið getið gert það með PM hér á spjallinu, sent okkur tölvupóst á driftdeild at gmail punktur com, póstað á DDA Facebook eða bara spjallað við okkur á æfingum.

F.h. DDA.

Re: DDA vantar dómara og starfsfólk

PostPosted: Thu 05. May 2011 20:32
by kalli*
Eru keppnirnar ekki vanalega á laugardögum ?

Re: DDA vantar dómara og starfsfólk

PostPosted: Thu 05. May 2011 20:43
by Einarsss
jamm, það passar