Page 1 of 1

Letihaugar (Aksturæfing DDA 06 05 2011)

PostPosted: Thu 05. May 2011 18:47
by MR.BOOM
Akstursæfing DDA 6. maí '11.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!
Image

*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 18:00 og við hættum að keyra kl. 21:00, þá er bara orðið dimmt og kalt. Í sumar er planið að opna og loka á mínútunni, svo það þýðir ekkert að mæta rétt fyrir 21:00! (Tíminn færist örugglega til 22:00 þegar sólin er farin að láta sjá sig)

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:
● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
● Gilt ökuskírteini.
● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
● Löglegur hjálmur.
● Nagladekk stranglega bönnuð.
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.
Það keyrir enginn án miða!
(nema þeir sem eru að skrá sig í félagið og hafa ekki keyrt ennþá, þeir mæta með kvittun og fá að keyra frítt)

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr.

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið.

Spurningar?

F.h. DDA.
Anton
Saber

Re: Letihaugar (Aksturæfing DDA 06 05 2011)

PostPosted: Thu 05. May 2011 20:13
by rufuz
Takk Sæmi.

Ef fólk vill eitthvað spurja út í æfinguna, þá viljum við endilega að fólk skrái sig á AÍH spjallið og spurji þar. Það notar nánast sama viðmót og þetta spjall, svo notendur ættu að "feel right at home".

Re: Letihaugar (Aksturæfing DDA 06 05 2011)

PostPosted: Fri 06. May 2011 01:13
by F2
Það eru alveg 7 manns á þessu aíh spjalli

Auglýsa þetta hérna og L2C það er það sem virkar

Re: Letihaugar (Aksturæfing DDA 06 05 2011)

PostPosted: Fri 06. May 2011 13:28
by MR.BOOM
Ýta þessu upp....allir að mæta í kvöld :thup:

Re: Letihaugar (Aksturæfing DDA 06 05 2011)

PostPosted: Fri 06. May 2011 15:06
by Jón Ragnar
Frábært veður í þetta allavega :thup:

Re: Letihaugar (Aksturæfing DDA 06 05 2011)

PostPosted: Fri 06. May 2011 15:24
by agustingig
mættööör,, Þakka f2 fyrir umfelgunina! :D :D

Re: Letihaugar (Aksturæfing DDA 06 05 2011)

PostPosted: Fri 06. May 2011 16:48
by dofri1
er búið að troða þennan veg að brautinni eitthvað betur síðan á síðasta ári?

Re: Letihaugar (Aksturæfing DDA 06 05 2011)

PostPosted: Fri 06. May 2011 17:19
by agustingig
dofri1 wrote:er búið að troða þennan veg að brautinni eitthvað betur síðan á síðasta ári?


Já, hann er margfalt skárri, eða var það allavega á seinustu driftæfingu :lol: ég keyrði minn þarna vandræðalaust á sleeves.. :D