Page 1 of 1

Toyo Tires AUTO-X á kvartmílubrautinni 18 sept - skráning

PostPosted: Sat 11. Sep 2010 02:08
by Jón Bjarni
Nýtt á kvartmílubrautinni
Kvartmíluklúbburinn í samstarfi við Bílabúð benna og Skeljung kynna : AUTO X

Við ætlum að prufa að keyra Auto X á kvartmílubrautinni
Þessi keppni verður keyrð samhliða 1/8 mílunni laugardaginnn 18 september.

Keyrt verður 1/8 á tíma, Refsing verður gefin fyrir að rekast í keilu og fleira.
Uppsetning á brautinni og refsistig verða gefin út á keppnisdag.

Keppnisfyrirkomulag:

Keyrð verður 1 æfingaferðir.

Síðan verða keyrðar 3 ferðir sem gilda til sigurs.
Samanlagður tími úr 2 bestu ferðunum gildir til sigurs.

Keyrt verður í 2 flokkum.
Bílar
Mótorhjól
Dagskrá:

9:30 – 11:00 Mæting Keppanda
11:00 Pittur lokar
11:15 Fundur með keppendum
11:25 – 11:55 Æfingarferðir
11:55 Tímatökur hefjast
13:20 Tímatökum lýkur
13:20 – 13:45 Hádegishlé
13:45 Keppendur Mættir við sín tæki
14:00 Keppni Hefst
16:25 Keppni lýkur – Kærufrestur Hefst
16:55 Kærufrestur liðinn
17:00 Verðlaunaafhenting á pallinum

Til að taka þá þarftu:

Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur í akstursíþróttarklúbb innan ÍSÍ
Við mælum svo með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda


Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið:

jonbjarni@kvartmila.is

Nafn
Kennitala
Keppnistæki
Bílnúmer
Flokkur
GSM

Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á kvartmíluspjallinu.
Nánari upplýsingar í síma 8473217, Jón Bjarni

SKRÁNINGU LÝKUR laugardaginn 18. september Á SLAGINU 11:00

Einnig ætla ég að biðja sem flesta að reyna að millifæra keppnisgjöldin

Reikningsnúmerið er:
#1101-26-111199
Kennitala:
# 660990-1199

Keppnisgjaldið er 3000kr

KOMA MEÐ KVITTUN ÚR HEIMABANKA


Keppendur undir 18 ára aldri þurfa skriflegt leyfi frá foreldrum eða forráðamönnum

Ef það eru einhverjar spurningar þá er ykkur velkomið að hringja í síma 847-3217, Jón Bjarni

Re: AUTO-X á kvartmílubrautinni 18 sept - skráning

PostPosted: Sat 11. Sep 2010 02:46
by tinni77
Þetta er klikkað !!! :thup: :thup: :thup:

Re: AUTO-X á kvartmílubrautinni 18 sept - skráning

PostPosted: Sat 11. Sep 2010 11:00
by Twincam
Er ekki fullseint í rassinn gripið að auglýsa þetta fyrst að fresturinn rann út 18. ÁGÚST? :mrgreen:

Re: AUTO-X á kvartmílubrautinni 18 sept - skráning

PostPosted: Sat 11. Sep 2010 13:59
by Bartek
kannski prufa þetta :thup:

Re: Toyo Tires AUTO-X á kvartmílubrautinni 18 sept - skránin

PostPosted: Tue 14. Sep 2010 02:04
by tinni77
Skora á alla sem telja sig vera mótorsportunnendur að taka þátt !

Re: Toyo Tires AUTO-X á kvartmílubrautinni 18 sept - skránin

PostPosted: Tue 14. Sep 2010 10:09
by kalli*
Hverning verður samt Auto-X braut á veg sem er bara beinn kafli ?

Re: Toyo Tires AUTO-X á kvartmílubrautinni 18 sept - skránin

PostPosted: Tue 14. Sep 2010 10:13
by tinni77
kalli* wrote:Hverning verður samt Auto-X braut á veg sem er bara beinn kafli ?


Sett upp keilur og þú sikksakkar á brautinni ? :lol:

Re: Toyo Tires AUTO-X á kvartmílubrautinni 18 sept - skránin

PostPosted: Thu 16. Sep 2010 17:44
by Jón Bjarni
ATH!!

Smá Breytingar á dagskrá og skráningarfrest

:)

Re: Toyo Tires AUTO-X á kvartmílubrautinni 18 sept - skránin

PostPosted: Sat 18. Sep 2010 20:20
by aronjarl
Jón Bjarni wrote:ATH!!

Smá Breytingar á kvartmíluklúbbi íslands.!




:thdown:

virkilega ósáttur með framkomu klúbbsins.

Re: Toyo Tires AUTO-X á kvartmílubrautinni 18 sept - skránin

PostPosted: Sat 18. Sep 2010 22:35
by Einarsss
aronjarl wrote:
Jón Bjarni wrote:ATH!!

Smá Breytingar á kvartmíluklúbbi íslands.!




:thdown:

virkilega ósáttur með framkomu klúbbsins.



:?:

edit búinn að sjá þráðinn um þetta :thdown: