Driftæfing í kvöld

Hér skal ræða um allt efni tengt mótorsporti. Ef þú þarft að auglýsa leikdag, æfingu, keppni eða eitthvað slíkt gerðu það þá hér.

Driftæfing í kvöld

Postby Aron Andrew » Fri 27. Aug 2010 13:15

Hæ hó

Við ætlum að halda æfingu í kvöld, 27. ágúst

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn



Image
*Mynd frá Sæma Boom,

Brautin opnar klukkan 18:00 og við hættum að keyra um 21:00 , þá er bara orðið dimmt og kalt

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega
Það sem þarf til að fá að keyra er:

Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
Gilt ökuskírteini
AÐ vera meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ
Löglegur hjálmur
Nagladekk stranglega bönnuð

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu.

Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í hafnarfirði og í reykjanesbæ.

Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum

Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.

Það keyrir enginn án miða!

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
Árgjald DDA 2010 er 3500kr

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inní pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið

Vona að ég sé ekki að gleyma neinu!
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Re: Driftæfing í kvöld

Postby kalli* » Fri 27. Aug 2010 15:49

Hefði þetta nú verið auglýst aðeins fyrr hefði ég öruglega mætt. :|
Image
'01 e46 320Ci
Seldir - '96 e39 540i | e36 M50B25 Compact | 99' BMW 316i Compact | '91 e34 520i
User avatar
kalli*
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2687
Joined: Sun 29. Mar 2009 14:06

Re: Driftæfing í kvöld

Postby Alex GST » Fri 27. Aug 2010 17:37

kalli* wrote:Hefði þetta nú verið auglýst aðeins fyrr hefði ég öruglega mætt. :|



já,, maður þarf að umfelga og gera...
BMW E60 ///M5 "2010"
Lexus IS300 Sportcross LS2
Alex GST
Getawaybílstjóri
 
Posts: 943
Joined: Wed 08. Apr 2009 22:38

Re: Driftæfing í kvöld

Postby bimmer » Sat 28. Aug 2010 00:14

Hvernig var?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Driftæfing í kvöld

Postby Aron Andrew » Sat 28. Aug 2010 01:19

bimmer wrote:Hvernig var?


Geggjað veður, fámennt en góðmennt :)
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur


Return to Mótorsport

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 1 guest