Page 1 of 3

Skráning í driftkeppni 15. ágúst

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 21:15
by Aron Andrew
Skráning er hafin

http://www.drift.is/keppnisskraning.html

Skráningu lýkur á föstudagskvöldið 13. ágúst kl 24:00 Enginn fær að skrá sig eftir það.

Til að keppa þarf að vera félagi í einhverju af aðildarfélögum ÍSÍ (t.d. BA, DDA, RCA, KK)

Skráning í DDA fer fram hér:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php

Við vekjum athygli á því að kaupa þarf keppnisskírteini frá ÍSÍ

Best er að keppendur greiði fyrir keppnisskírteinið inn á þennan reikning:

324 26 192
kt:530782-0189

Og prenti svo út kvittun fyrir greiðslunni og mæti með í keppni.

Hægt er að borga 10.000 kr fyrir allt árið í öllum greinum eða 1.000 kr fyrir dagsskírteini en þá fást ekki stig til íslandsmeistara.

Re: Skráning í driftkeppni 15. ágúst

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 21:25
by Jón Bjarni
hérna aron..

er keppinn ekki laugardaginn 14 ágúst?

Re: Skráning í driftkeppni 15. ágúst

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 23:10
by siggir
Og 13. ágúst er föstudagur...

Re: Skráning í driftkeppni 14. ágúst

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 23:15
by Jón Ragnar
Búinn að breyta þessu fyrir hann Andrew :alien:

Re: Skráning í driftkeppni 14. ágúst

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 02:41
by dofri1
wtf stóð á dagatalinu 15.ágúst sem er sunnudagur

Re: Skráning í driftkeppni 14. ágúst

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 03:33
by Stefan325i
Jebb dagur á dagatali hlítur að standa, persónulega er ég búinn að stíla inn á 15 þið getið ekki bara breitt því þetta er búð að standa í allt sumar.

Image

Image

Tekið af http://www.aihsport.is/index.php/adalsida

Nú eiga 3 keppendur möguleika á Íslandsmeistaratitlinum og ræðst því í næstu keppni, 15. ágúst, hver verður íslandsmeistari!

Staða þriggja efstu manna er svona

1. Aron Jarl Hillerz 25 stig

2. Sigurður S. Guðjónsson 24 stig

3. Stefán Örn Sölvason 19 stig



Kv. Driftdeild AÍH

Re: Skráning í driftkeppni 14. ágúst

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 11:27
by Emil Örn
Þannig hvort er keppnin, á laugard. 14. eða sunnud. 15. ?

Re: Skráning í driftkeppni 14. ágúst

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 11:30
by gstuning
Hver er fyrirvarinn sem DDA gefur sér til að tilkynna keppendum um breytann keppnistíma?

1vika er í raun ekki beint nóg þegar planið er búið að vera á einn veginn allt sumarið.

Re: Skráning í driftkeppni 14. ágúst

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 12:44
by Aron Andrew
Auglýsingin var rétt í upphafi þegar ég setti hana inn

Keppnin er 15. ágúst

Skráningu lýkur föstudagskvöldið 13. ágúst kl 24:00

Hættið svo að rugla mig

Re: Skráning í driftkeppni 15. ágúst

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 13:00
by Jón Ragnar
Eflaust fail á mig aðalega :)

Re: Skráning í driftkeppni 15. ágúst

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 15:07
by Stefan325i
Ég fékk næstu hjartaáfall, hefði ekki geta mætt á 14.

Re: Skráning í driftkeppni 14. ágúst

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 15:27
by siggir
Aron Andrew wrote:Auglýsingin var rétt í upphafi þegar ég setti hana inn

Keppnin er 15. ágúst

Skráningu lýkur föstudagskvöldið 13. ágúst kl 24:00

Hættið svo að rugla mig


Það stóð fimmtudagskvöldið 13. ... :)

Re: Skráning í driftkeppni 14. ágúst

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 20:09
by Aron Andrew
siggir wrote:
Aron Andrew wrote:Auglýsingin var rétt í upphafi þegar ég setti hana inn

Keppnin er 15. ágúst

Skráningu lýkur föstudagskvöldið 13. ágúst kl 24:00

Hættið svo að rugla mig


Það stóð fimmtudagskvöldið 13. ... :)


Já usss! :lol:

Re: Skráning í driftkeppni 15. ágúst

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 21:52
by Axel Jóhann
Spurning um að taka bara þátt í fyrstu keppninni minni í sumar! :oops:

Re: Skráning í driftkeppni 15. ágúst

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 21:55
by tinni77
Axel Jóhann wrote:Spurning um að taka bara þátt í fyrstu keppninni minni í sumar! :oops:


Do it!