Rally Reykjavík 2010

Hér skal ræða um allt efni tengt mótorsporti. Ef þú þarft að auglýsa leikdag, æfingu, keppni eða eitthvað slíkt gerðu það þá hér.

Rally Reykjavík 2010

Postby siggir » Mon 02. Aug 2010 23:12

Daginn,

Rally Reykjavík mun fara fram á suðvesturhorninu dagana 12. til 14. ágúst. Við leitum að starfsfólki í tímavörslu, gæslu o.s.frv. Engin reynsla af störfum í ralli er nauðsynleg. Æskilegt er að fólk kunni á klukku og ekki er verra hafi það bíl til umráða. Þá er fólki með skyndihjálparnámskeið að baki tekið fagnandi.
Um sjálfboðavinnu er að ræða en starfsmenn fá greitt fyrir útlagðan kostnað, s.s. bensín og uppihald, og snæða kvöldverð á verðlaunaafhendingu að keppni lokinni í boði keppnisstjórnar. Þá fá tveir heppnir starfsmenn að sitja sem farþegar í alvöru rallýbíl á sérleið um Gufunes.

Áhugasamir geta haft samband við Sigurð í síma 8481930, í tölvupósti á netfangið sigurdur@rallyreykjavik.net eða með einkapósti hér á spjallinu.

Fyrir hönd keppnisstjórnar,
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Return to Mótorsport

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 1 guest