Page 1 of 2

Driftæfing 25. júní

PostPosted: Thu 24. Jun 2010 00:21
by Aron Andrew
Hæ hó

Við ætlum að halda leikdag á föstudaginn 25. júní

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn

Spáir fínasta veðri

Image
*Mynd frá Sæma Boom,

Brautin opnar klukkan 18:00 og við hættum að keyra um 21:00 ;)

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega
Það sem þarf til að fá að keyra er:

Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
Gilt ökuskírteini
AÐ vera meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ
Löglegur hjálmur
Nagladekk stranglega bönnuð

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu.

Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í hafnarfirði og í reykjanesbæ.

Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum

Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.

Það keyrir enginn án miða!

Einnig erum við komnir með árskortin til sölu og kosta þá 10.000 kr og fást hjá okkur upp á braut.

Við förum að vinda okkur í að framleiða skírteinin

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
Árgjald DDA 2010 er 3500kr

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inní pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið

Vona að ég sé ekki að gleyma neinu!

mbk

Aron Andrew

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Thu 24. Jun 2010 15:47
by agustingig
Er ekki í lagi að mæta púst laus? datt undan um daginn og tími ekki að eyða 5kall í það þegar ég er að fara hífa þetta uppúr á næstunni,,, :thdown:

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Thu 24. Jun 2010 19:41
by Axel Jóhann
ef að bíllinn er skoðaður held ég að það ætti ekki að skipta máli.

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Thu 24. Jun 2010 22:10
by Aron Andrew
agustingig wrote:Er ekki í lagi að mæta púst laus? datt undan um daginn og tími ekki að eyða 5kall í það þegar ég er að fara hífa þetta uppúr á næstunni,,, :thdown:


Þú mátt samt alveg sleppa því ef þetta gefur frá sér óbærilegann hávaða :lol:

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Fri 25. Jun 2010 00:25
by Alpina
Mæti sem áhorfandi :o

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Fri 25. Jun 2010 00:27
by agustingig
Aron Andrew wrote:
agustingig wrote:Er ekki í lagi að mæta púst laus? datt undan um daginn og tími ekki að eyða 5kall í það þegar ég er að fara hífa þetta uppúr á næstunni,,, :thdown:


Þú mátt samt alveg sleppa því ef þetta gefur frá sér óbærilegann hávaða :lol:



Buinn að redda þessu :thup: Sauð þetta bara sjálfur :D

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Fri 25. Jun 2010 00:31
by Bjarni Þór
mæti sem áhorfandi

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Fri 25. Jun 2010 00:52
by Árni S.
Aron Andrew wrote:
agustingig wrote:Er ekki í lagi að mæta púst laus? datt undan um daginn og tími ekki að eyða 5kall í það þegar ég er að fara hífa þetta uppúr á næstunni,,, :thdown:


Þú mátt samt alveg sleppa því ef þetta gefur frá sér óbærilegann hávaða :lol:

piff... þetter nú bara 1800 getur ekki verið svo hávært :P

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Fri 25. Jun 2010 15:02
by Steini B
Er hægt að kaupa þessi dagskort með viðskiptakorti N1?

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Fri 25. Jun 2010 15:51
by Aron Andrew
Steini B wrote:Er hægt að kaupa þessi dagskort með viðskiptakorti N1?


Örugglega

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Fri 25. Jun 2010 18:26
by Bjarni Þór
eru menn að fara ?

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Fri 25. Jun 2010 19:13
by Alpina
Bjarni Þór wrote:eru menn að fara ?


Hættur við að mæta sem áhorfandi :o

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Fri 25. Jun 2010 19:23
by Bjarni Þór
það er nú samt eitthvað að stytta upp hérna í hafnarfirði...rétt dropar bara

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Fri 25. Jun 2010 21:33
by rufuz
Andsk.... Var að taka eftir póstinum.

Aron, auglýsa með meira en dags fyrirvara! :burn:

Re: Driftæfing 25. júní

PostPosted: Fri 25. Jun 2010 21:41
by Einarsss
Verður auto X næst? :D