Page 1 of 2

Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Wed 26. May 2010 14:35
by arnibjorn
Hæ hó

Við ætlum að halda leikdag á föstudaginn 28 maí.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn

Spáir fínasta veðrið, klíniði sólarvörn framan í ykkur!

Image
*Mynd frá Sæma Boom,

Brautin opnar klukkan 18:00 og við hættum að keyra um 21:00 ;)

Réttur hringur

Að öðru leiti verður fyrirkomulagið með sama sniði og vanalega:

5 hringir keyrðir í einu og aðeins einn bíll í brautinni í einu.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
Gilt ökuskírteini
Löglegur hjálmur
Nagladekk stranglega bönnuð

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu.

Gjaldið fyrir að keyra eru 1000 kr fyrir þá sem eru skráðir í DDA og þeir sem eru EKKI meðlimir þurfa að greiða 2000kr
Vakin er athygli á að ársgjald DDA 2010 er 3500kr

Vegna misskilnings sem virðist hafa komið upp þá finnst mér gott að nefna það að menn þurfa auðvitað að vera í akstursíþróttaklúbbi innan ÍSÍ til að keyra. Semsagt ef þú ert í BA, KK ofl. þá kostar 2000kr. Ef þú ert í DDA þá kostar 1000kr.


MIKILVÆGT

Nú er komið í gagnið miðasala hjá N1 bæði í Lækjargjötu í hafnarfirði og í reykjanesbæ.

Hægt er að kaupa dagskort, bæði innan og utan félags.

Það kostar 1000kr fyrir meðlimi og 2000 kr fyrir þá sem eru ekki skráðir meðlimir í DDA.

Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.

Það keyrir enginn án miða!

Einnig erum við komnir með árskortin til sölu og kosta þá 10.000 kr og fást hjá okkur upp á braut.

Við förum að vinda okkur í að framleiða skírteinin

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inní pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið

Vona að ég sé ekki að gleyma neinu!

mbk

Árni Björn

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Wed 26. May 2010 14:39
by Jón Ragnar
Whoopwhoop :mrgreen:

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Wed 26. May 2010 14:41
by arnibjorn
Kemst ekki :argh:

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Wed 26. May 2010 16:18
by T-bone
Ég mæti VONANDI!!! 8) 8) :twisted:

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Wed 26. May 2010 17:53
by Axel Jóhann
Ég kíkji þarna við. :mrgreen:

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Thu 27. May 2010 01:25
by dofri1
megavika domino's og ég þar af leiðandi liggur við járnaður við staðinn og kemst ekki

(ég vinn þar)

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Thu 27. May 2010 12:36
by Aron Andrew
dofri1 wrote:megavika domino's og ég þar af leiðandi liggur við járnaður við staðinn og kemst ekki

(ég vinn þar)


Sendlastu bara með nokkrar pizzur handa okkur

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Thu 27. May 2010 14:47
by gunnar
Maður kíkir upp eftir á liðið þar sem maður er loksins kominn til byggða 8)

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Thu 27. May 2010 17:59
by Axel Jóhann
ég ætla mæta og mökka feitt

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Thu 27. May 2010 18:16
by hjolli
djöfull lýst mér vel á hvað þið eruð að hafa leikdag oft 8) :thup:

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Fri 28. May 2010 02:13
by dofri1
Aron Andrew wrote:
dofri1 wrote:megavika domino's og ég þar af leiðandi liggur við járnaður við staðinn og kemst ekki

(ég vinn þar)


Sendlastu bara með nokkrar pizzur handa okkur


það væri vel séð, allavega hjá mér, veit ekki með yfirmanninn :D

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Fri 28. May 2010 22:01
by Axel Jóhann
Mega fjör þó svo ég hafi verið einn að keyra fyrsta klukkutímann :mrgreen: Náði allavega stóru beygjunni í 3ja gír 8) Mega fjör að keyra öfugan hring :D

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Fri 28. May 2010 22:25
by bimmer
Hverjir voru að keyra?

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Fri 28. May 2010 23:13
by Alpina
bimmer wrote:Hverjir voru að keyra?


Axel Jóhann ............. :biggrin: :biggrin:

Re: Driftæfing föstudaginn 28 maí

PostPosted: Fri 28. May 2010 23:16
by dofri1
ég reyni klárlega að mæta næst !