Page 1 of 2

Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Thu 20. May 2010 08:43
by arnibjorn
Hæ hó

Við ætlum að halda leikdag á Laugardaginn 22 maí.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn

Spáin er ágæt, skýjað en á að hanga þurrt!

Image
*Mynd frá Sæma Boom,

Brautin opnar klukkan 13:00 og við hættum að keyra um 18:00 ;)

Réttur hringur

Að öðru leiti verður fyrirkomulagið með sama sniði og vanalega:

5 hringir keyrðir í einu og aðeins einn bíll í brautinni í einu.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
Gilt ökuskírteini
Löglegur hjálmur
Nagladekk stranglega bönnuð

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu.

Gjaldið fyrir að keyra eru 1000 kr fyrir þá sem eru skráðir í DDA og þeir sem eru EKKI meðlimir þurfa að greiða 2000kr
Vakin er athygli á að ársgjald DDA 2010 er 3500kr

Vegna misskilnings sem virðist hafa komið upp þá finnst mér gott að nefna það að menn þurfa auðvitað að vera í akstursíþróttaklúbbi innan ÍSÍ til að keyra. Semsagt ef þú ert í BA, KK ofl. þá kostar 2000kr. Ef þú ert í DDA þá kostar 1000kr.


MIKILVÆGT

Nú er komið í gagnið miðasala hjá N1 bæði í Lækjargjötu í hafnarfirði og í reykjanesbæ.

Hægt er að kaupa dagskort, bæði innan og utan félags.

Það kostar 1000kr fyrir meðlimi og 2000 kr fyrir þá sem eru ekki skráðir meðlimir í DDA.

Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.

Það keyrir enginn án miða!

Einnig erum við komnir með árskortin til sölu og kosta þá 10.000 kr og fást hjá okkur upp á braut.

Við förum að vinda okkur í að framleiða skírteinin

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inní pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið

Vona að ég sé ekki að gleyma neinu!

mbk

Árni Björn

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Thu 20. May 2010 16:18
by dofri1
glæsilegt að hafa þetta á laugardegi, ég reyni að mæta

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Thu 20. May 2010 19:16
by Bartek
-...eg getur ekki mæta :argh:

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 08:55
by arnibjorn
Hvað segiði kjéééépps.... er enginn að spá í að spóla?

Ég er að spá í að prufa Compactinn ef ég verð ekki þunnur og ógeðslegur. :mrgreen:

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 11:59
by Aron Andrew
Ekkert þynnkukjaftæði.

Ég ætla að klára 1-2 ganga

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 12:34
by arnibjorn
Þynnkan gengur fyrir, svo driftið.

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 13:46
by Jón Ragnar
Ég verð byrjaður aftur að drekka þegar þið eruð á æfinguni :P

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 13:57
by dofri1
Aron Andrew wrote:Ekkert þynnkukjaftæði.

Ég ætla að klára 1-2 ganga


sama hér

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 17:10
by EggertD
eiga ekki æfingar ad vera alltaf a föstudögum :roll: ?

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 17:19
by arnibjorn
EggertD wrote:eiga ekki æfingar ad vera alltaf a föstudögum :roll: ?

Jú en núna er hún á laugardegi. Er það ekki í lagi?

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 17:30
by dofri1
arnibjorn wrote:
EggertD wrote:eiga ekki æfingar ad vera alltaf a föstudögum :roll: ?

Jú en núna er hún á laugardegi. Er það ekki í lagi?


mér finnst það nú bara betra ef eitthvað er...

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 18:37
by agustingig
Maður keyrir kannski einhvern v8 8)

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 20:05
by gulli
arnibjorn wrote:
EggertD wrote:eiga ekki æfingar ad vera alltaf a föstudögum :roll: ?

Jú en núna er hún á laugardegi. Er það ekki í lagi?

Er ekki í lagi að spurja samt?

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 20:13
by arnibjorn
gulli wrote:
arnibjorn wrote:
EggertD wrote:eiga ekki æfingar ad vera alltaf a föstudögum :roll: ?

Jú en núna er hún á laugardegi. Er það ekki í lagi?

Er ekki í lagi að spurja samt?

Jú, var ekki í lagi að ég svaraði samt?

Re: Driftæfing LAUGARDAGINN 22. maí

PostPosted: Fri 21. May 2010 20:28
by ingo_GT
arnibjorn wrote:
gulli wrote:
arnibjorn wrote:
EggertD wrote:eiga ekki æfingar ad vera alltaf a föstudögum :roll: ?

Jú en núna er hún á laugardegi. Er það ekki í lagi?

Er ekki í lagi að spurja samt?

Jú, var ekki í lagi að ég svaraði samt?


Haha :lol: