Page 1 of 1
Pyramid-ring vs O-ring -

Posted:
Wed 09. Dec 2009 12:33
by fart
Getur einhver útskýrt þetta betur fyrir mér, hver sé megin munurinn, hvort sé betra.
kanski dumb question, en ég fatta ekki megin muninn á þessu
Re: Pyramid-ring vs O-ring -

Posted:
Wed 09. Dec 2009 12:35
by Einarsss
veit ekki muninn en ég hefði haldið að O ring sé betra því að markmiðið þar er að hringurinn hitti beint á málmhringinn á pakkningunni og ætti að halda mun betur.
Re: Pyramid-ring vs O-ring -

Posted:
Wed 09. Dec 2009 14:34
by gstuning
Pyramid ring :
Er nýr hringur sem er settur í sæti sem er rennt í sleevina. Hann er pýramídalaga on top og er svipað og o-ring
nema að hann hefur samkvæmt PPF aldrei gefið sig og leyft þrýsting að sleppa úr stimpilrýminu. Það þarf því að renna blokkina
til að fitta hringinn og fá spes eldhringja lausa heddpakkningu. Þetta meira og minna lætur hringinn sjá um að halda þrýstingnum inni og heddpakkningin er þá bara að halda vatni og olíu aðskildu.
O-ring :
rennt er hringur í hedd eða blokk og einþráðungsvír settur ofan í, og látinn standa uppúr um 0,3mm
þegar venjulega heddpakkning er svo hert niður þá myndar vírinn betra átak á eldhringinn í pakkningunni og leyfir honum því síður að gefa sér.
Auðvitað virkar ekkert af þessu ef maður er ekki með rétta heddstudda sem lyfta heddinu.
Kanarnir eru núna komnir með solid plan á hersluna á ARP 2000 studdum á M5X seríu vélum.
32lbs fyrst , og það er athugað á löngu tímabili, stundum allt að heilann dag, þ.e að herslan hættir að jafna sig og herslan að dreyfa sér misjafnt á studdanna, svo er 90° hersla og svo aftur 90° hersla. Þetta endar í um 130lbs herslu
og ekkert á að lyfta sér eftir það. Aldrei herða studdanna alveg fyrr enn þeir eru hættir að færa sig frá 32lbs samkvæmt bimmerforums.
Pyramid hringirnir leyfa endur notkun á heddinu 2-3sinnum áður enn þarf að plana í burtu farið, einhverstaðar um 0,1mm cirka.
Re: Pyramid-ring vs O-ring -

Posted:
Wed 09. Dec 2009 15:02
by fart
Gunni delivers!

Þessi hersluformúla kemur frá ARP, er basically í leiðbeiningunum með ARP2000. Mig minnir að mínir hafi verið hertir 120lbs max.
Re: Pyramid-ring vs O-ring -

Posted:
Wed 09. Dec 2009 15:22
by gstuning
Vandamálið kemur frá því að menn herða í 32lbs og þegar er farið að herða meira þá verður enda herslan óregluleg á milli boltanna og sumir eru því meira stressed að halda dótinu niður.
Re: Pyramid-ring vs O-ring -

Posted:
Wed 09. Dec 2009 15:40
by fart
gstuning wrote:Vandamálið kemur frá því að menn herða í 32lbs og þegar er farið að herða meira þá verður enda herslan óregluleg á milli boltanna og sumir eru því meira stressed að halda dótinu niður.
Ég ætla líka að reyna endur-herslu, en þarf að taka helvítis knastásana úr til þess. S.s. not a job for the weekend mechanic

Re: Pyramid-ring vs O-ring -

Posted:
Wed 09. Dec 2009 19:42
by Einarsss
alveg ótrúlegt hvað maður getur torkað í sömu töluna oft ef maður bíður í góðan tíma á milli .. beið reyndar ekki í sólarhring á milli hjá mér en herti í 30 nm nokkrum sinnum með 20 mín á milli