Page 1 of 1

Driftkeppni laugardaginn 8. ágúst! - FRESTAÐ

PostPosted: Tue 04. Aug 2009 22:59
by arnibjorn
EDIT: KEPPNI HEFUR VERIÐ FRESTAÐ
Fimmta umferð í Íslandsmeistaramótinu í drifti árið 2009 verður haldin 8. ágúst næstkomandi.

Keppnin verður haldin á akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg.


Dagskrá

Föstudagur
19:00 Æfing fyrir keppendur

Laugardagur
12:00 Svæði opnar/ Mæting keppanda
12:30 Skoðun keppnistækja/útbúnað ökutækja /Fundur með keppendum
13:00 Upphitun hefst
14:00 Upphitun lýkur

14:15 Ræsing 1.umferð
15:15 Hlé
15:45 Ræsing 2. Umferð
16:45 Lok keppni/dómarahlé
17:00 Kærufrestur liðinn
17:30 Tilkynning úrslita
17:30 Verðlaunaafhending

Það kostar 500 kr inn fyrir áhorfendur og eru áhorfendur beðnir um að leggja við Sjoppuna, ekki við pittinn.

Allir þeir sem geta mætt og hjálpað til við keppnishaldið eru velkomnir og beðnir um að mæta áður en upphitun hefst.




Til keppanda:

Keyrður verður öfugur hringur í þetta skiptið!

Upplýsingar um skráningu í Driftdeildina er að finna hér: http://www.drift.is/skraningifelagid.php

Upplýsingar um skráningu í keppnina er að finna hér: http://www.drift.is/keppnisskraning.php

Það gilda sömu reglur og vanalega.

Til að keyra þarf:
Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl (gilda endurskoðun ef ekki er sett út á öryggisatriði)
Hjálm

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Kv. Driftdeild AÍH

Re: Driftkeppni laugardaginn 8. ágúst!

PostPosted: Tue 04. Aug 2009 23:06
by Einarsss
Er þetta ekki fimmta?

Re: Driftkeppni laugardaginn 8. ágúst!

PostPosted: Tue 04. Aug 2009 23:11
by arnibjorn
einarsss wrote:Er þetta ekki fimmta?

Jú, smá c/p fail hjá mér.

Takk fyrir pointerinn. :)

Re: Driftkeppni laugardaginn 8. ágúst!

PostPosted: Wed 05. Aug 2009 01:31
by agustingig
verður ekki æfing fyrir keppendur á föstudaginn? 8)

Re: Driftkeppni laugardaginn 8. ágúst!

PostPosted: Wed 05. Aug 2009 08:58
by arnibjorn
agustingig wrote:verður ekki æfing fyrir keppendur á föstudaginn? 8)

Lestu póstinn :)