Page 1 of 3

Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 15:42
by arnibjorn
Hæ hó

Það verður drift æfing uppá rallýkrossbraut á morgun, mánudaginn 27 júlí.
Við ákváðum að halda þessa æfingu af því að æfingin um verslunarmannahelgina dettur niður.

Opið verður kl. 19:00 til 22:00(jafnvel lengur ef mæting verður góð eins og á síðustu föstudagsæfingu!)

Í þetta skiptið verður keyrður öfugur hringur!

Að öðru leiti verður fyrirkomulagið með sama sniði og vanalega:

5 hringir keyrðir í einu og aðeins einn bíll í brautinni í einu.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
Gilt ökuskírteini
Löglegur hjálmur

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu.

Gjaldið fyrir að keyra eru 1000 kr fyrir þá sem eru skráðir í DDA og ef þú ert ekki skráður í DDA þá er árgjaldið 2000kr og þú færð frítt á fyrstu æfingu.

Vegna misskilnings sem virðist hafa komið upp þá finnst mér gott að nefna það að menn þurfa auðvitað að vera í akstursíþróttaklúbbi innan ÍSÍ til að keyra. Semsagt ef þú ert í BA, KK ofl. þá kostar 2000kr. Ef þú ert í DDA þá kostar 1000kr.

Bara klúður hjá okkur að hafa ekki nefnt þetta fyrr.


MIKILVÆGT

Nú er komið í gagnið miðasala hjá N1 bæði í Lækjargjötu í hafnarfirði og í reykjanesbæ.

Hægt er að kaupa dagskort, bæði innan og utan félags.

Það kostar 1000kr fyrir meðlimi og 2000 kr fyrir þá sem eru ekki skráðir meðlimir í DDA.

Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.

Það keyrir enginn án miða!


Einnig erum við komnir með árskortin til sölu og kosta þá 10.000 kr og fást hjá okkur upp á braut.

Þið sem eruð komnir með meðlimaskírteinin skuluð hafa þau meðferðis.
Það eru N1 kortin sem þið fenguð send heim nýlega
Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://rca.forumcircle.com/viewtopic.php?t=457

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inní pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið :D

Vona að ég sé ekki að gleyma neinu!

mbk
Árni Björn f. hönd Driftdeildar AÍH

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 16:12
by aronjarl
mæti ekki, skemmdi dekkin seinast.. :| :thdown:

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 17:34
by gunnar
Held ég mæti barasta 8)

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 17:36
by Alpina
Eins og vanalega TEAM wannabe :thdown: :thdown: :thdown:

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 18:02
by sh4rk
Ég mæti, er með 2 dekk í þetta, en spurning um að tína eitthvað af dóti af bílnum áður en maður fer á brautina :roll:

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 18:21
by Jón Ragnar
Alpina wrote:Eins og vanalega TEAM wannabe :thdown: :thdown: :thdown:



Kemuru ekki bara á CE benz? 8)

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 18:22
by Alpina
John Rogers wrote:
Alpina wrote:Eins og vanalega TEAM wannabe :thdown: :thdown: :thdown:



Kemuru ekki bara á CE benz? 8)


:shock: skrítið,,,,,,

var einmitt að spá hvort það væri sniðugt,,

:thdown: :thdown: :thdown:



hmmmmmmmm.. sé til

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 18:27
by tinni77
mæti eflaust :wink: 8)

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 18:28
by Einarsss
Hugsa að ég reyni mitt til að mæta :P

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 18:53
by Axel Jóhann
Æj djöfull ég verð í herjolfi. :(

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 20:17
by Jón Ragnar
Alpina wrote:
John Rogers wrote:
Alpina wrote:Eins og vanalega TEAM wannabe :thdown: :thdown: :thdown:



Kemuru ekki bara á CE benz? 8)


:shock: skrítið,,,,,,

var einmitt að spá hvort það væri sniðugt,,

:thdown: :thdown: :thdown:



hmmmmmmmm.. sé til


Go for it 8)

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 23:37
by aronjarl
John Rogers wrote:
Alpina wrote:
John Rogers wrote:
Alpina wrote:Eins og vanalega TEAM wannabe :thdown: :thdown: :thdown:



Kemuru ekki bara á CE benz? 8)


:shock: skrítið,,,,,,

var einmitt að spá hvort það væri sniðugt,,

:thdown: :thdown: :thdown:



hmmmmmmmm.. sé til




pffff.... :thdown:



enga leigubíla á brautina :|

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Mon 27. Jul 2009 00:25
by sh4rk
:lol: en verður að keyra öfugan hring?

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Mon 27. Jul 2009 01:31
by Dóri-
sh4rk wrote::lol: en verður að keyra öfugan hring?


ég hélt einmitt að það væri glatað en það er eiginlega bara skemmtilegra :)



Skúramoddaði gormana áðan, er kominn með 4 dekk vantar bara að komast í umfelgunarvél :P

Re: Driftæfing mánudaginn 27 júlí!!

PostPosted: Mon 27. Jul 2009 01:35
by arnibjorn
Dóri- wrote:
sh4rk wrote::lol: en verður að keyra öfugan hring?


ég hélt einmitt að það væri glatað en það er eiginlega bara skemmtilegra :)

Skúramoddaði gormana áðan, er kominn með 4 dekk vantar bara að komast í umfelgunarvél :P


Enn og aftur... sendu Jarlinum pm :D