Page 1 of 9

Driftkeppni 6. júní uppfært í post #1

PostPosted: Sun 31. May 2009 12:32
by Aron Andrew
Önnur umferð í Íslandsmeistaramótinu í drifti árið 2009 verður haldin 6. júní næstkomandi.

Keppnin verður haldin á akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg.


Dagskrá

Föstudagur
19:00 Æfing fyrir keppendur

Laugardagur
9:00 Svæði opnar/ Mæting keppanda
10:00 Mætingar frestur útrunninn
10:00 Skoðun keppnistækja/útbúnað ökutækja
10:30 Fundur með keppendum
11:00 Upphitun hefst
12:00 Upphitun lýkur

13:00 Ræsing 1.umferð
14:00 Hlé
15:00 Ræsing 2. Umferð
16:30 Lok keppni/dómarahlé
17:00 Kærufrestur liðinn
17:00 Tilkynning úrslita
17:00 Verðlaunaafhending

Það kostar 500 kr inn fyrir áhorfendur og eru áhorfendur beðnir um að leggja við Sjoppuna, ekki við pittinn.

Allir þeir sem geta mætt og hjálpað til við keppnishaldið eru velkomnir og beðnir um að mæta áður en upphitun hefst.




Til keppanda:

Upplýsingar um skráningu í Driftdeildina er að finna hér: http://rca.forumcircle.com/viewtopic.php?t=457

Upplýsingar um skráningu í keppnina er að finna hér: http://www.drift.is/forsida-pg-1-3.html

Það gilda sömu reglur og vanalega.

Til að keyra þarf:
Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl (gilda endurskoðun ef ekki er sett út á öryggisatriði)
Hjálm

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Kv. Driftdeild AÍH

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Mon 01. Jun 2009 06:12
by T-bone
Jæja. Líst vel á þetta, en það er bara svo langt síðan það var æfing síðast...

Verður æfing á föstudeginum fyrir þetta eins og síðast?

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Mon 01. Jun 2009 11:59
by Aron Andrew
pacifica wrote:Jæja. Líst vel á þetta, en það er bara svo langt síðan það var æfing síðast...

Verður æfing á föstudeginum fyrir þetta eins og síðast?


Já stefnum á það

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Tue 02. Jun 2009 01:00
by Axel Jóhann
Kemst því miður ekki :( :bawl:

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Tue 02. Jun 2009 11:20
by aronjarl
mér persónulega finst að það eigi ekki að kosta að taka þátt.
þetta er nógu anskoti dýrt að taka þátt fyrir utan keppnis gjald.

20 þús + - 5þús

ekkert illa meint.

dekk
umfelgun
bensín



hugsa það mundu fleiri keppa ef svo væri.


:?

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Tue 02. Jun 2009 11:25
by arnibjorn
aronjarl wrote:mér persónulega finst að það eigi ekki að kosta að taka þátt.
þetta er nógu anskoti dýrt að taka þátt fyrir utan keppnis gjald.
20 þús + - 5þús
ekkert illa meint.
dekk
umfelgun
bensín

hugsa það mundu fleiri keppa ef svo væri.
:?

Það finnst mér ýkt fyndið :lol:

Finnst þér að það ætti að vera frítt að keppa?

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Tue 02. Jun 2009 11:37
by gstuning
Meikar nú bara ekkert sense að það sé frítt að keppa.

Ef þú átt ekki efni á að keppa sjálfur þá ferðu og finnurru sponsera, þannig virkar mótorsport u see. :thup:
Gengur allt út á að fá og viðhalda sponserum.

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Tue 02. Jun 2009 12:23
by slapi
Ef að það væri ókeypis að keppa gæti driftdeildin ekki rekið sig sem myndi verða keðjuverkun á það að brautin væri minna opin.
Þannig að þetta frábæra framtak væri ekki mögulegt nema vegna þeirra sem stunda þetta.


Umfelgunin þarf ekki að vera merkileg fyrir þetta drift , Jarlinn þarf að læra að umfelga með felgujárni.

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Tue 02. Jun 2009 18:05
by aronjarl
ég er bara að segja þetta því ég á ekki aura í þetta allt :lol:
keypri óvart bíl um helgina.

en já ég reyndi að umfelga með svona járnum bara.
hef aldrei svitnað eins mikið á ævini.!!
vantaði sleipiefnið.!



ég fór í dag að kaupa 2 hardcore spóldekk fyrir keppnina. :shock:

þannig því er reddað.


þá eru það bara bíladagar eftir. :thup:

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Tue 02. Jun 2009 18:43
by ingo_GT
Hverni tími þið að kaupa ykkur spóldekk :lol:

Farið niður á dekkjaverkstæði og fáið að hyrða góð dekk sem er búið að henda :roll: :)


Annars þá fór ég panta númerinn á E30 minn og ég stefni á það að fara með hann í skoðun í vikunni og tekk þá í driftinnu mjöglíklega 8)

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Tue 02. Jun 2009 22:09
by Aron Andrew
ingo_GT wrote:Hverni tími þið að kaupa ykkur spóldekk :lol:

Farið niður á dekkjaverkstæði og fáið að hyrða góð dekk sem er búið að henda :roll: :)


Það er leiðinlegt, ekkert gaman að dekkjum sem endast 5 hringi eða eitthvað...

Þú kemst að þessu þegar þú verður eldri :wink:

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Tue 02. Jun 2009 22:15
by gstuning
Stundum endast ný dekk ekki einu sinni 5hringi ;)
þá meina ég alveg GLÆ ný.

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Wed 03. Jun 2009 00:16
by Alpina
gstuning wrote:Stundum endast ný dekk ekki einu sinni 5hringi ;)
þá meina ég alveg GLÆ ný.


Láttu mig alveg um það ........... :lol: :lol: :lol: :lol: :shock:

215/45 17"

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Wed 03. Jun 2009 01:34
by SteiniDJ
Væri snilld ef menn gætu reddað sér sponsum. Kannski ef þessi íþrótt myndi verða vinsælli hér á landinu og fjölmiðlar færu að veita þessu athygli, þá ætti það að vera easymode fyrir þá flinku.

Re: Driftkeppni 6. júní

PostPosted: Wed 03. Jun 2009 01:40
by ingo_GT
Aron Andrew wrote:
ingo_GT wrote:Hverni tími þið að kaupa ykkur spóldekk :lol:

Farið niður á dekkjaverkstæði og fáið að hyrða góð dekk sem er búið að henda :roll: :)


Það er leiðinlegt, ekkert gaman að dekkjum sem endast 5 hringi eða eitthvað...

Þú kemst að þessu þegar þú verður eldri :wink:


Ertu að seigja að ég sje einhvað lítil :lol: allavega


Ég er búin að vinna bæði hjá sólning og N1 og það er oft hent MJÖG heillegum dekkjum :)

Allavega ég fæ mín spóldekk gefins og ég er sáttur að þurfa ekki að borga fyrri einhvað sem maður skemmir síðan klukku tíma seinna :roll: :mrgreen: