Page 1 of 6

Driftæfing á föstudaginn 22. maí - BREYTING!!

PostPosted: Mon 18. May 2009 13:04
by arnibjorn
Sælir allir,

Image
Mynd frá TRD

Við vorum of fljót á okkur að auglýsa æfingu á miðvikudaginn... brautin er upptekin þá þannig að við ætlum að hafa þetat á Föstudaginn 22. maí

Vonandi að veðrið verði eitthvað svipað og núna! :)

Opið verður kl. 19:00 til 22:00

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega:

5 hringir keyrðir í einu og aðeins einn bíll í brautinni í einu.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
Gilt ökuskírteini
Löglegur hjálmur

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu.

Gjaldið fyrir að keyra eru 1000 kr fyrir þá sem eru skráðir í DDA og ef þú ert ekki skráður í DDA þá er árgjaldið 2000kr og þú færð frítt á fyrstu æfingu.

Endilega reyna að millifæra inná okkur árgjaldið þar sem að við verðum ekki með posa. Greiða verður með seðlum.

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://rca.forumcircle.com/viewtopic.php?t=457

Það er síðan verið að vinna í að útbúa árskort og munu þau koma til með að kosta ~10.000kr

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inní pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið :D

Vona að ég sé ekki að gleyma neinu!

mbk
Árni Björn f. hönd Driftdeildar AÍH

Re: Driftæfing á miðvikudaginn 20. maí

PostPosted: Mon 18. May 2009 13:06
by Einarsss
Mæti vonandi á bíl til að keyra ... annars til að mynda 8)

Re: Driftæfing á miðvikudaginn 20. maí

PostPosted: Mon 18. May 2009 13:15
by Axel Jóhann
Stefnir í að ég mæti bara =) 8) 8) 8)

Re: Driftæfing á miðvikudaginn 20. maí

PostPosted: Mon 18. May 2009 13:18
by arnibjorn
Axel Jóhann wrote:Stefnir í að ég mæti bara =) 8) 8) 8)

Klassi :)

Ég ætla líka að mæta og refsa 2-4 dekkjum ef að bíllinn helst í lagi :D

Re: Driftæfing á miðvikudaginn 20. maí

PostPosted: Mon 18. May 2009 16:58
by T-bone
Líst vel á þetta. Mæti örugglega!

Re: Driftæfing á miðvikudaginn 20. maí

PostPosted: Mon 18. May 2009 19:37
by gunnar
Ohh ég get ekki beðið eftir því að mæta upp á braut :x

Re: Driftæfing á miðvikudaginn 20. maí

PostPosted: Mon 18. May 2009 20:11
by Axel Jóhann
gunnar wrote:Ohh ég get ekki beðið eftir því að mæta upp á braut :x




Ertu með LSD? :)

Re: Driftæfing á miðvikudaginn 20. maí

PostPosted: Mon 18. May 2009 20:14
by arnibjorn
Axel Jóhann wrote:
gunnar wrote:Ohh ég get ekki beðið eftir því að mæta upp á braut :x


Ertu með LSD? :)

Já hann er með lsd, bara ekki hentugasta hlutfallið til að nota uppá braut. :)

Re: Driftæfing á miðvikudaginn 20. maí

PostPosted: Mon 18. May 2009 20:36
by gunnar
Er með 3,64 sem er bara loppið hlutfall fyrir M52 :argh:

Ekki nema ég fái svona 20-40 hestöfl í viðbót, þá get ég driftað í þriðja gír með allt í botni 8)

Re: Driftæfing á miðvikudaginn 20. maí

PostPosted: Mon 18. May 2009 20:40
by Einarsss
gunnar wrote:Er með 3,64 sem er bara loppið hlutfall fyrir M52 :argh:

Ekki nema ég fái svona 20-40 hestöfl í viðbót, þá get ég driftað í þriðja gír með allt í botni 8)



http://cgi.ebay.com/Turbo-Boost-Electri ... 7C294%3A50

:naughty:

Re: Driftæfing á miðvikudaginn 20. maí

PostPosted: Mon 18. May 2009 20:43
by gunnar
Öss, verð að panta tvo svona.

Set einn alveg bókað á pústið!!!

Bara óvart öll hestöflin! :mrgreen: :drool:

Re: Driftæfing á miðvikudaginn 20. maí

PostPosted: Mon 18. May 2009 20:56
by Axel Jóhann
Væri gaman að kaupa svona og mæta með bílinn á dynó og sjá hvort það sé munur. :lol:

Re: Driftæfing á föstudaginn 22. maí - BREYTING!!

PostPosted: Tue 19. May 2009 14:14
by arnibjorn
Vá ég failaði bigtime.

Æfingin verður á föst en ekki miðv.

Ég hélt að brautin væri laus en go-kart kallarnir ætla að hafa æfingu á morgun. Ég vissi ekki af því :?

Vonandi að þetta skemmi ekki fyrir neinum.

Ég mæti ekki :cry:

Re: Driftæfing á föstudaginn 22. maí - BREYTING!!

PostPosted: Tue 19. May 2009 14:21
by Einarsss
Mæti sennilega ekki heldur :(

Re: Driftæfing á föstudaginn 22. maí - BREYTING!!

PostPosted: Wed 20. May 2009 10:13
by arnibjorn
Planið hjá mér var að breytast...

Ég mæti og mökka brjál! :D