Page 1 of 4

Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Mon 11. May 2009 14:12
by Aron Andrew
Sælir allir,

Image
Mynd frá TRD

Vilja ekki allir komast að æfa sig til að ná sér í dollu á næstu keppni? :)

Það verður drift æfing uppá rallýkrossbraut næsta föstudag, 15. maí

Spáin segir 15° hiti og sól, vonum að það standist!

Opið verður kl. 19:00 til 22:00

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega:

5 hringir keyrðir í einu og aðeins einn bíll í brautinni í einu.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
Gilt ökuskírteini
Löglegur hjálmur

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu.

Gjaldið fyrir að keyra eru 1000 kr fyrir þá sem eru skráðir í DDA og ef þú ert ekki skráður í DDA þá er árgjaldið 2000kr og þú færð frítt á fyrstu æfingu.

Endilega reyna að millifæra inná okkur árgjaldið þar sem að við verðum ekki með posa. Greiða verður með seðlum.

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://rca.forumcircle.com/viewtopic.php?t=457

Það er síðan verið að vinna í að útbúa árskort og munu þau koma til með að kosta ~10.000kr

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inní pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið :D

Vona að ég sé ekki að gleyma neinu!

mbk
Aron Andrew f. hönd Driftdeildar AÍH

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Mon 11. May 2009 14:46
by arnibjorn
MÆTI EKKI

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Mon 11. May 2009 15:06
by Dóri-
arnibjorn wrote:MÆTI EKKI

x2

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Mon 11. May 2009 17:31
by Stefan325i
Demit ég kemst ekki fokk

X3

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Mon 11. May 2009 17:37
by Einarsss
ætla reyna mæta :P

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Mon 11. May 2009 18:37
by Axel Jóhann
ANDSKOTANS mig langar að mæta, kem kannski. :lol:

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Mon 11. May 2009 19:37
by Robbi318is
Mæti vonandi.. :P

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Mon 11. May 2009 20:54
by Stefan325i
Aron ertu að gera eithvað fyrir þennan tíma, ég er búinn í vinnuni klukkan 14:00

:D :D

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Tue 12. May 2009 00:13
by Aron Andrew
Stefan325i wrote:Aron ertu að gera eithvað fyrir þennan tíma, ég er búinn í vinnuni klukkan 14:00

:D :D


hehe

Ég er bara ekki atvinnulaus lengur 8)

Fyrsti dagurinn á morgun, þannig því miður :mrgreen:

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Tue 12. May 2009 21:13
by KOTO
buinn að redda ökuskirteini á bara eftir að henda 17" undir og skoðun og mökka bjál

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Tue 12. May 2009 21:16
by arnibjorn
KOTO wrote:buinn að redda ökuskirteini á bara eftir að henda 17" undir og skoðun og mökka bjál

Like! :D

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Wed 13. May 2009 00:29
by Grétar G.
KOTO wrote:buinn að redda ökuskirteini á bara eftir að henda 17" undir og skoðun og mökka bjál


skoðun ?

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Wed 13. May 2009 07:58
by bimmer
Aron Andrew wrote:
Stefan325i wrote:Aron ertu að gera eithvað fyrir þennan tíma, ég er búinn í vinnuni klukkan 14:00

:D :D


hehe

Ég er bara ekki atvinnulaus lengur 8)

Fyrsti dagurinn á morgun, þannig því miður :mrgreen:


Til hamingju með það!

Hvar ertu að byrja?

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Thu 14. May 2009 13:15
by arnibjorn
bimmer wrote:
Aron Andrew wrote:
Stefan325i wrote:Aron ertu að gera eithvað fyrir þennan tíma, ég er búinn í vinnuni klukkan 14:00

:D :D


hehe

Ég er bara ekki atvinnulaus lengur 8)

Fyrsti dagurinn á morgun, þannig því miður :mrgreen:


Til hamingju með það!

Hvar ertu að byrja?

Greinilega of mikið að gera hjá Aroni í vinnunni til að geta svarað þessu.

Hann var að byrja hjá Húsasmiðjunni og verður þar í sumar. Jón Ragnar líka að vinna þar :)

Re: Driftæfing á föstudag 15. maí

PostPosted: Thu 14. May 2009 13:15
by arnibjorn
Smá bump...

Ætla ekki einhverjir BMWar að keyra? :D