Ef einhver veit um hvar ég get fengið 'OD'YR ný eða lítið notuð 18" sumardekk endilega láta mig vita!!!!!
235/45/18" og 285/35 eða 30/18"
Posted: Sat 01. Feb 2003 22:32
by saemi
Er þetta ekki svona svipað og að biðja um 22 ára fegurðardrottningu sem er hrein mey og vill byrja með manni?
... Fat chance
En það má alltaf reyna, "Can't blame a guy for tryin' "
Sæmi kaldhæðnislegi
Posted: Sun 02. Feb 2003 03:41
by Raggi M5
'Eg keypti nú allann ganginn á 60 þús í vöku í fyrra, vill helst samt fá skárri dekk en ég fékk í fyrra...
Posted: Sun 02. Feb 2003 10:20
by saemi
60.000.- Það hljóta nú að hafa verið ágætis dekk fyrst þau kostuðu þetta mikið í Vöku!
En ef það er þetta sem þú meinar með ódýr, þá skil ég að þú gætir fengið eitthvað. Mitt ódýrt er þá ekki sama og þitt ódýrt
Ég hélt þú værir að tala um hvort einhver væri með dekk handa þér á svona eins og innan við helming af þessu ...
Sæmi
Posted: Sun 02. Feb 2003 13:27
by Raggi M5
Mér fynnst 60 þús ekki mikið við að stykkið af þessu kostar 70 þúsund útí búð! En ef þú ert aðtala um 30 kall það væri ekkert verra
Posted: Sun 02. Feb 2003 13:49
by saemi
Hmmmmm... 70.000.- Er þá gullhúðuð rönd á hliðinni?
Nei í alvöru, er þetta svona dýrt hérna. Ég veit að dekk eru dýr á íslandi, en kommon!
Ég tékkaði á 17" síðasta vor og þá sýndist mér Michelin Pilot Sport vera á um 30.000.- hér (255/40/17). Hvaða 18" dekk kostar 70.000.- stykkið?
Sæmi
Posted: Sun 02. Feb 2003 17:32
by Kull
Er 285/35 ekki full breitt? Ég er með 265/35 og finnst það alveg nóg. Síðan verður að hafa í huga að ef það er mikill munur á fram og afturdekkjum þá getur undirstýring orðið pirrandi.
Ég var að skoða 235/40/18 dekk síðasta sumar og Hekla var með Goodyear Eagle F1 á um 35 þús og ÁG var með Yokohama á svipað. Dýrasta var Michelin á um 50 þús en það er bara okur.
Vaka er málið en maður verður að hringja daglega og koma um leið og sending kemur því þessi dekk rjúka út. Annars var ég mjög heppinn síðasta sumar, fékk góðann gang af Dunlop SP sport 8000 á 50 þús hjá manni sem hafði ekki not fyrir þau lengur.
Samt eru þessi dekk alltof dýr hér, það væri ráð fyrir nokkra að taka sig saman og flytja þetta inn sjálfir, kæmi betur út held ég.
Posted: Mon 03. Feb 2003 19:35
by Raggi M5
'eg er með 11" breiðar felgur að aftan, það má ekki vera mikið minna 'eg ætla bara reyna finna mér einhver dekk úti og flytja inn, það er miklu ódýrara. ef einhver veit um góða leið þá má hann endilega láta mig vita