Page 1 of 1

STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Thu 04. Dec 2014 05:03
by Angelic0-
Jæja, nú er að verða komið ár síðan að það var stolið 19" LM Mesh fyrir utan aðstöðuna mína í Vogum á Vatnsleysuströnd, ég hef litla sem enga trú á því að felgurnar finnist en hef grunaðan geranda í málinu, málið er þannig að vexti að lögreglan stöðvaði för viðkomandi þegar að hann ók frá verkstæðinu hjá mér á stolnum bíl (ég s.s. kom út og sá þá keyra burt á Benz vörubíl, hringdi á lögregluna þar sem að ég tók eftir að húddið og brettið vantaði á bílinn aftan við verkstæðið hjá mér, tók ekki eftir felgunum strax) en sleppti honum svo með þýfið og á stolna bílnum... en hann tók í slagtogi við annan... þessar 19" felgur, húdd á E39 bíl, frambretti og skottlok...

Það sem að hann tók voru 19" LM MESH með offset og centerbore fyrir E39, á þeim voru Toyo T1R í stærðunum 245/40ZR19 og 275/35ZR19... nýleg en ekki alveg ný...

Ég hef ekki auglýst eftir þessu neinstaðar í allan þennan tíma þar sem að ég bjóst nú við að laganna verðir myndu nenna að vinna vinnuna sína, en það virðist víst bara virka fyrir "venjulegt fólk"....

Ég held alveg örugglega að það sé bara einn svona gangur á landinu, og svo bara einn 19" BBS LM genuine gangur, þannig að ég átti von á því að þetta dúkkaði upp e'h staðar, en þjófurinn sem um ræðir er ansi klókur og hefur eflaust komið þeim úr landi eða er enn að "kæla" þær...

Ég biðla því til ykkar kraftsmenn að ef að þið sjáið 19" BBS LM (eða eitthvað sem að resemblar þær, að senda mér skilaboð hið fyrsta)

Mynd af eins felgum, það voru btw alvöru svartar BBS miðjur í felgunum, þekkjast einna heilst af því...

Image

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Thu 04. Dec 2014 05:50
by D.Árna
Glatað að geta ekki látið eigur annara í friði :thdown:

En mér þykir afar líklegt að um sama aðila sé að ræða og er að stela öllum þessum subaru bílum þar sem ég hef nokkuð öruggar heimildir um að þetta fífl sé hér á landinu núna..

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Thu 04. Dec 2014 07:50
by Alpina
Hvernig væri að nafngreina þennann ÖÐLING og og og og og..............

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Fri 05. Dec 2014 14:03
by Angelic0-
Hann heitir Gunnar, og býr erlendis... það virðist vera að í hvert skipti sem að hann sést í snjónum á Íslandi hverfi hlutir í massavís....

Gamall þráður um þá frá 2006 á "barnalandi"...

https://bland.is/messageboard/messagebo ... id=4214379

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Sat 06. Dec 2014 15:22
by Jökull94
Veit nú um 2 bíla á BBS LM replicum alveg eins og á myndinni með gráar miðjur, en báðir aðilar fluttu sýnar felgur inn.. man ekki hvort þeir gangar eru 18 eða 19"

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Sun 07. Dec 2014 01:21
by Angelic0-
18"... er búinn að vera að skoða þetta....

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Mon 08. Dec 2014 13:13
by haffi-gt
Við ágúst erum baðir a 19" ekki 18" ;)

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Fri 12. Dec 2014 11:39
by Angelic0-
hahaha, án þess að hafa nafngreint aðilann... nema að mér grunaði að þetta væri hann... og þetta gamla bland dót...

helduru að ég hafi ekki fengið rignandi inn hótunum.... ætli hann sé saklaus ???

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Thu 25. Dec 2014 17:42
by tolliii
Þú verður að komast að því :evil: Ef þetta var hann og hann sé mikið í útlandinu, þá eru yfirburðar líkur að þetta sé farið úr landi..
Sérstaklega þar sem þetta er mjög rare hérna heima.
En ég skil ekki afhverju lögreglan sleppir honum?? , eftir að hafa stoppað hann á stolnum bíl með stolnum varning eftir að þú tilkinntir hann.
Hver var þá tilgangurinn að stoppa hann yfir höfuð :roll:

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Fri 26. Dec 2014 19:43
by Angelic0-
Svona er þetta bara...

Sé ekki fyrir mér að þetta sé að fara að finnast...

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Sun 28. Dec 2014 02:44
by ///MR HUNG
Angelic0- wrote:Hann heitir Gunnar, og býr erlendis... það virðist vera að í hvert skipti sem að hann sést í snjónum á Íslandi hverfi hlutir í massavís....

Gamall þráður um þá frá 2006 á "barnalandi"...

https://bland.is/messageboard/messagebo ... id=4214379

Þessi Bland þráður er ekki að segja manni rassgat :lol:

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Sun 28. Dec 2014 07:09
by D.Árna
Þessi gæji er FÁVITI :!: Braust inn í Legacyinn minn bara núna um daginn...

Re: STOLIÐ - 19" BBS LM replicas

PostPosted: Sun 28. Dec 2014 12:04
by Alpina
Er ekkert hægt að koma vitinu fyrir svona mannleysu :?